„Halldór Gunnlaugsson (héraðslæknir)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 4: | Lína 4: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982. | * [[Guðlaugur Gíslason]]: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] | ||
[[Flokkur:Læknar]] | [[Flokkur:Læknar]] |
Útgáfa síðunnar 7. júlí 2006 kl. 11:40
Halldór Gunnlaugsson var héraðslæknir Vestmannaeyja frá 1906 til 1924. Hann fæddist á Skeggjastöðum á Langanessströnd. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Halldórsson og Margrét Andrea Lúðvíksdóttir. Halldór varð stúdent í Reykjavík 1897 og cand. med. frá Háskóla Íslands árið 1903. Hann starfaði á Köbenhavns-Amtsjúkrahúsinu árið 1903 og seinna sem aðstoðarlæknir á Akureyri 1903-1905. Halldór var skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1906 og gegndi því embætti þar til hann drukknaði við skyldustörf sín í hinu mikla sjóslysi sem varð við Eiðið 16. desember 1924.
Hann var franskur ræðismaður og starfaði sem yfirlæknir á Franska spítalanum sem rekinn var í Eyjum um alllangt skeið í húsinu sem nú er Kirkjuvegur 20 (Gamli spítalinn). Kona hans var Anna Sigrid Threp og áttu þau fjögur börn og eru allmargir afkomendur þeirra búsettir í Vestmannaeyjum.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.