„Eyjólfur Pétursson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Eyjólfur Pétursson á Eyjólfur Pétursson (skipstjóri)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 18. janúar 2019 kl. 21:23
Eyjólfur Pétursson fæddist í Laugardal í Vestmannaeyjum 4. nóvember 1946. Hann er sonur hjónanna Sigríðar Eyjólfsdóttur og Péturs Þorbjörnssonar. Eyjólfur Pétursson er kvæntur Ingveldi Gísladóttur og eiga þau tvö börn.
Eyjólfur byrjaði sem hálfdrættingur á togurum frá Reykjavík með föður sínum sem var skipstjóri hjá Bæjarútgerðinni. Eyjólfur var háseti og stýrimaður þar til hann tók við togaranum Hallveigu Fróðadóttur árið 1969 og var með hana í þrjú ár. Árið 1972 var hann ráðinn sem skipstjóri á skuttogarann Vestmannaey. Á fyrstu 15 mánuðunum undir hans stjórn fiskaði Vestmannaey 4,200 tonn. Eyjólfur gerðist meðeigandi í útgerð Vestmannaeyjar en seldi sinn hlut í útgerðinni rétt fyrir aldamótin 2000 og flutti til Reykjavíkur þar sem hann hóf sjoppurekstur í Hafnarfirði.
Eyjólfur Pétursson var aflakóngur Vestmannaeyja 1966 og 1967.
Heimildir
- Þórarinn Ingi Ólafsson. http://www.eyjar.is/ingiol