„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Helgir menn og helgistaðir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 300px|thumb)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:


[[Mynd:Sr. Karl Sigurbjörnsson sókarprestur.png|300px|thumb]]
[[Mynd:Sr. Karl Sigurbjörnsson sókarprestur.png|300px|thumb]]
Helgir menn og helgistaðir
SR. KARL SIGURBJÖRNSSON:
FYRSTA kirkja, sem reist var í kristni á íslandi, var byggð í Vescmannaeyjum af viðum, sem Ólafur konungur Tryggvason sendi með Hjalta og Gissuri hvíta vorið 1000. Skyldu þeir reisa þar kirkju sem þeir fyrst kæmu á land. Var kirkjan reist á Hörgaeyri hér í Vestmannaeyj-um, í landi landnámsjarðarinnar, Ormsstaða, og helguð Klemensi biskupi í Róm. Á gullöld kaþólsku kirkjunnar (12.-13. öld) er vitað um þrjár kirkjur hér í Eyjum, en þá var kirkna-fjöldi mikill á íslandi. Ekki er fjarri lagi að kirkja eða kapella hafi verið á hverjum bæ. Vert er að gefa því gaum, að báðir kirkjustað-irnir hér aðrir en Klemenskirkju, hétu Kirkju-bær. Kirkjubær fyrir ofan Leiti var síðar nefnd-ur Ofanleiti til aðgreiningar. Nafnið Kirkjubær er ekki algengt hér á landi (5 staðir alls), og telja sumir það tengt pöpum. Merkastur er Kirkjubær á Síðu, en þar máttu aldrei heiðnir menn búa. Hafi papar verið hér, sem er harla liklegt, þá er ekki ósennilegt, að helgistaðir þeirra hafi verið á Kirkjubæjunum tveim.
Að vissu leyti má segja, að kirkjur hafi gegnt öðru hlutverki til forna en nú. Kirkjan var ekki fyrst og fremst staðurinn þar sem söfnuðurinn kom saman til að lofa Guð og ákalla og hlýða á orð hans, og meðtaka sakramentin. Kirkjan var e. k. orkuver, þaðan sem Guðlegur kraftur srxeymdi út yfir land og farvegi þeirra helgu athafna, sem þar fóru fram. í messunni bar presturinn fram fórnina fyrir hönd safnaðarins og tryggði þannig velferð manna, blessun Guðs yfir menn og málleysingja, fisk, fugl og fén-að, frjósemi moldar og gæftir á sjó.
Hver kirkja var helguð ákveðnum dýrlingi, sem var verndari kirkjunnar, og var kennd við hann. Dýrlingar voru menn, sem kirkjan hafði tekið í heilagra manna tölu, eftir að þeir lífs og liðnir höfðu sýnt sig vera öðrum fremri í heilögu líferni. A himnum stóðu þeir frammi fyrir augliti Guðs og fluttu honum bænir ákall-enda sinna, en einnig voru þeir greiðasamir og leystu úr margvíslegum vanda manna.
Þeir dýrlingar, sem kirkjurnar hér í Eyjum voru helgaðar, voru allir sérstaklega tengdir sjó og sæfarendum, sem eðlilegt er. Fyrstan skal frægan telja heilagan Klemens. Hann var bisk-up í Róm, hinn þriðji í röðinni. Hann var læri-sveinn og samverkamaður Páls postula, og er nefndur í Filippíbréfinu (4,3). Varðveitt er bréf, sem Klemens reit kirkjunni í Korintu, og er það verðmæt heimild um líf frumkirkj-unnar, og elsta dæmið um það, að Rómarbisk-up teldi sig hafa umboð til að skipta sér af innri málum annarra kirkna, og lagði þannig grundvöll að páfaveldinu. Eins og postularnir þá leið Klemens píslarvætti. Segir sagan, að hann hafi verið dæmdur vegna trúar sinnar í þrælkunarvinnu í marmaranámum á Krím-skaga, og var líflátinn þar, bundinn við akkeri og sökkt í sjó. Síðar var hann verndardýrlingur sjómanna. Akkerið er merki hans, og er til þessa í merki Landakirkju.
Annað merki Klemensar er lamb og brunn-ur. Segir sagan, að Guðs lamb hafi bent Klem-ensi á hvernig hann fyndi vatn handa sér og samföngum sínum í hita og þurrki námunnar. Klemens var gott að ákalla, er vatnsskortur var, skýrir það e. t. v. hvers vegna honum var helg-uð kirkja hér, en aðeins tvær aðrar kirkjur á Is-landi voru honum helgaðar. Hinn 23. nóvember er ártíðardagur Klemensar.
Um Klemensarkirkju eru síðastar heimildir á 13. öld, en þó gæti hún hafa haldist miklu lengur, alla vega sem bænhús og þjónað þeim Eyjabúum, sem bjuggu í kauptúninu sjálfu.
Elstu heimildir um Kirkjubæjarkirkju er máldagi frá 1269. Hún var helguð heilögum Nikulási. Nikulás var biskup í Myra í Litlu Asíu fyrir miðja 4. öld. Hann varð einn vin-sælasti dýrlingur kirkjunnar. Verndardýrlingur heilla þjóðlanda (t. d. Rússlands), héraða, bisk-upsdæma og borga, og óteljandi kirkna. Hann var verndari sjómanna, kaupmanna og barna. Sem barnadýrlingur er hann fyrirrennari jóla-sveinsins, sem í Vestur-Evrópu og Ameríku er nefndur Sankti Klás. Sagan segir að hann hafi bjargað þrem stúlkubörnum frá því að vera seld í þrældóm með því að varpa þremur gull-pokum inn um glugga þeirra. Þess vegna eru börnum gefnar gjafir á degi hans, 6. desember.
Merki Nikulásar er ýmist skip eða akkeri, en bæn hans bjargaði sjómönnum úr sjávarháska, síðan er hann verndari sæfarenda. Fjölmargar kirkjur hér á landi voru honum helgaðar.
Kirkjan á Ofanleiti er ýmist kennd við Pét-tir eða Andrés. Vel getur hún hafa verið helguð báðum, því algengt var, að dýrlingar væru fleiri en einn við hverja kirkju. En er frá leið hefur Andrés orðið yfirsterkari, því hann er einn nefndur verndardýrlingur kirkjunnar skv. máldaga 1491-1518.
Bræðurnir Símon Pétur og Andrés voru fiskimenn við Galíleuvatn, er Jesús gekk í veg fyrir þá og kallaði þá til fylgdar við sig til að „veiða menn". Og þeir yfirgáfu netin og fylgdu honum. Frá þessu er skýrt í Mattheusar-, Mark-úsar- og Jóhannesarguðspjalli. Þótt Andrés yrði fyrri til að hlýða kallinu, þá varð Símon miklu atkvæðameiri í lærisveinahópnum, og djarfur leiðtogi kirkjunnar eftir Hvítasunnuatburðinn. Guðspjöllin og Postulasagan gefa afar glögga og sanna mynd af þessum mikla fiskimanni. Auk þess eru tvö bréf í Nýjatestamentinu eftir Pétur. Pétur varð biskup í Róm og leið píslar-vætti þar í hinum grimmúðlegu ofsóknum Nerós keisara gegn kristnum mönnum árið 67, krossfestur með höfuðið niður. Merki hans er því öfugur kross, en oftast þó tveir lyklar, sem mynda X. Á það rætur sínar í orðum Jesú er Símon Pétur hafði játað fyrir munn lærisvein-anna, að Jesús væri Kristur, Guðs sonurinn, en hann sagði: „Sæll ert þú, Símon Jónasson, því hold og blóð (þ. e. menn) hefur eigi opinberað þér það, heldur faðir minn í himnunum. En ég segi þér: Þú ert Pétur (: klettur) og á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn, og hlið Heljar skulu eigi verða honum yfirsterkari. Ég mun gefa þér lykla himnaríkis, og sérhvað, sem þú bindur á jörðu, skal bundið verða í himnun-um, og sérhvað, sem þú leysir á jörðu, skal leyst verða í himnunum". (Matt. 16, 17-19).
Kirkjur helgaðar Pétri eru f jölmargar í kristn-inni, Skálholtsdómkirkja var helguð honum. Dagur hans er 29. júní.
Ef Pétur er fulltrúi prestanna, kennimann-anna og leiðtoganna, þá er Andrés fulltrúi trú-aðra leikmanna allra tíma. í 1. kafla Jóhannes-arguðspjalls er því lýst, er Andrés fór á eftir Jesú til að kynnast honum, síðan segir: „Hann finnur fyrst bróður sinn Símon, og segir við hann: Við hófum fundið Messías... og hann fór með hann til Jesú". Hann var ekki einn af þeim, sem eiga bara sína trú fyrir sig. Eins og hinir postularnir var Andrés líflátinn fyrir trú sína, krossfestur á X laga krossi, og segir sagan, að hann hafi hangið tvo sólarhringa á krossinum og prédikað fagnaðarerindið fyrir Iýðnum áður en hann lést. Það hefur verið áhrifarík ræða.
Merki Andrésar er X laga kross. Hann var verndardýrlingur fiskimanna, einkum við neta-veiði. Andrés yar þjóðardýrlingur Skota, en alls voru 16 kirkjur hér á landi helgaðar hon-um. Dagur hans er 30. nóvember.
Siðbótin afnam alla dýrkun helgra manna, þótt siðbótarmenn legðu áherslu á, að lífi þeirra, minningu og fordæmi væri sýnd til-hlýðileg virðing. Landakirkja, sem fyrst var reist 1573 er því ekki helguð neinum dýrlingi sérstaklega. En vel má kalla hana arftaka Klem-ensarkirkju, og síðar kirkna Andrésar og Nik-ulásar, eftir að þær hurfu. Ekki er úr vegi að minnast þessa, og þá um leið þess sess, sem kirkjan hefur átt í lífi og trú sjómanna hér í Eyjum um aldir.

Útgáfa síðunnar 7. nóvember 2018 kl. 14:39


Helgir menn og helgistaðir


SR. KARL SIGURBJÖRNSSON:


FYRSTA kirkja, sem reist var í kristni á íslandi, var byggð í Vescmannaeyjum af viðum, sem Ólafur konungur Tryggvason sendi með Hjalta og Gissuri hvíta vorið 1000. Skyldu þeir reisa þar kirkju sem þeir fyrst kæmu á land. Var kirkjan reist á Hörgaeyri hér í Vestmannaeyj-um, í landi landnámsjarðarinnar, Ormsstaða, og helguð Klemensi biskupi í Róm. Á gullöld kaþólsku kirkjunnar (12.-13. öld) er vitað um þrjár kirkjur hér í Eyjum, en þá var kirkna-fjöldi mikill á íslandi. Ekki er fjarri lagi að kirkja eða kapella hafi verið á hverjum bæ. Vert er að gefa því gaum, að báðir kirkjustað-irnir hér aðrir en Klemenskirkju, hétu Kirkju-bær. Kirkjubær fyrir ofan Leiti var síðar nefnd-ur Ofanleiti til aðgreiningar. Nafnið Kirkjubær er ekki algengt hér á landi (5 staðir alls), og telja sumir það tengt pöpum. Merkastur er Kirkjubær á Síðu, en þar máttu aldrei heiðnir menn búa. Hafi papar verið hér, sem er harla liklegt, þá er ekki ósennilegt, að helgistaðir þeirra hafi verið á Kirkjubæjunum tveim. Að vissu leyti má segja, að kirkjur hafi gegnt öðru hlutverki til forna en nú. Kirkjan var ekki fyrst og fremst staðurinn þar sem söfnuðurinn kom saman til að lofa Guð og ákalla og hlýða á orð hans, og meðtaka sakramentin. Kirkjan var e. k. orkuver, þaðan sem Guðlegur kraftur srxeymdi út yfir land og farvegi þeirra helgu athafna, sem þar fóru fram. í messunni bar presturinn fram fórnina fyrir hönd safnaðarins og tryggði þannig velferð manna, blessun Guðs yfir menn og málleysingja, fisk, fugl og fén-að, frjósemi moldar og gæftir á sjó. Hver kirkja var helguð ákveðnum dýrlingi, sem var verndari kirkjunnar, og var kennd við hann. Dýrlingar voru menn, sem kirkjan hafði tekið í heilagra manna tölu, eftir að þeir lífs og liðnir höfðu sýnt sig vera öðrum fremri í heilögu líferni. A himnum stóðu þeir frammi fyrir augliti Guðs og fluttu honum bænir ákall-enda sinna, en einnig voru þeir greiðasamir og leystu úr margvíslegum vanda manna. Þeir dýrlingar, sem kirkjurnar hér í Eyjum voru helgaðar, voru allir sérstaklega tengdir sjó og sæfarendum, sem eðlilegt er. Fyrstan skal frægan telja heilagan Klemens. Hann var bisk-up í Róm, hinn þriðji í röðinni. Hann var læri-sveinn og samverkamaður Páls postula, og er nefndur í Filippíbréfinu (4,3). Varðveitt er bréf, sem Klemens reit kirkjunni í Korintu, og er það verðmæt heimild um líf frumkirkj-unnar, og elsta dæmið um það, að Rómarbisk-up teldi sig hafa umboð til að skipta sér af innri málum annarra kirkna, og lagði þannig grundvöll að páfaveldinu. Eins og postularnir þá leið Klemens píslarvætti. Segir sagan, að hann hafi verið dæmdur vegna trúar sinnar í þrælkunarvinnu í marmaranámum á Krím-skaga, og var líflátinn þar, bundinn við akkeri og sökkt í sjó. Síðar var hann verndardýrlingur sjómanna. Akkerið er merki hans, og er til þessa í merki Landakirkju. Annað merki Klemensar er lamb og brunn-ur. Segir sagan, að Guðs lamb hafi bent Klem-ensi á hvernig hann fyndi vatn handa sér og samföngum sínum í hita og þurrki námunnar. Klemens var gott að ákalla, er vatnsskortur var, skýrir það e. t. v. hvers vegna honum var helg-uð kirkja hér, en aðeins tvær aðrar kirkjur á Is-landi voru honum helgaðar. Hinn 23. nóvember er ártíðardagur Klemensar. Um Klemensarkirkju eru síðastar heimildir á 13. öld, en þó gæti hún hafa haldist miklu lengur, alla vega sem bænhús og þjónað þeim Eyjabúum, sem bjuggu í kauptúninu sjálfu. Elstu heimildir um Kirkjubæjarkirkju er máldagi frá 1269. Hún var helguð heilögum Nikulási. Nikulás var biskup í Myra í Litlu Asíu fyrir miðja 4. öld. Hann varð einn vin-sælasti dýrlingur kirkjunnar. Verndardýrlingur heilla þjóðlanda (t. d. Rússlands), héraða, bisk-upsdæma og borga, og óteljandi kirkna. Hann var verndari sjómanna, kaupmanna og barna. Sem barnadýrlingur er hann fyrirrennari jóla-sveinsins, sem í Vestur-Evrópu og Ameríku er nefndur Sankti Klás. Sagan segir að hann hafi bjargað þrem stúlkubörnum frá því að vera seld í þrældóm með því að varpa þremur gull-pokum inn um glugga þeirra. Þess vegna eru börnum gefnar gjafir á degi hans, 6. desember. Merki Nikulásar er ýmist skip eða akkeri, en bæn hans bjargaði sjómönnum úr sjávarháska, síðan er hann verndari sæfarenda. Fjölmargar kirkjur hér á landi voru honum helgaðar. Kirkjan á Ofanleiti er ýmist kennd við Pét-tir eða Andrés. Vel getur hún hafa verið helguð báðum, því algengt var, að dýrlingar væru fleiri en einn við hverja kirkju. En er frá leið hefur Andrés orðið yfirsterkari, því hann er einn nefndur verndardýrlingur kirkjunnar skv. máldaga 1491-1518. Bræðurnir Símon Pétur og Andrés voru fiskimenn við Galíleuvatn, er Jesús gekk í veg fyrir þá og kallaði þá til fylgdar við sig til að „veiða menn". Og þeir yfirgáfu netin og fylgdu honum. Frá þessu er skýrt í Mattheusar-, Mark-úsar- og Jóhannesarguðspjalli. Þótt Andrés yrði fyrri til að hlýða kallinu, þá varð Símon miklu atkvæðameiri í lærisveinahópnum, og djarfur leiðtogi kirkjunnar eftir Hvítasunnuatburðinn. Guðspjöllin og Postulasagan gefa afar glögga og sanna mynd af þessum mikla fiskimanni. Auk þess eru tvö bréf í Nýjatestamentinu eftir Pétur. Pétur varð biskup í Róm og leið píslar-vætti þar í hinum grimmúðlegu ofsóknum Nerós keisara gegn kristnum mönnum árið 67, krossfestur með höfuðið niður. Merki hans er því öfugur kross, en oftast þó tveir lyklar, sem mynda X. Á það rætur sínar í orðum Jesú er Símon Pétur hafði játað fyrir munn lærisvein-anna, að Jesús væri Kristur, Guðs sonurinn, en hann sagði: „Sæll ert þú, Símon Jónasson, því hold og blóð (þ. e. menn) hefur eigi opinberað þér það, heldur faðir minn í himnunum. En ég segi þér: Þú ert Pétur (: klettur) og á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn, og hlið Heljar skulu eigi verða honum yfirsterkari. Ég mun gefa þér lykla himnaríkis, og sérhvað, sem þú bindur á jörðu, skal bundið verða í himnun-um, og sérhvað, sem þú leysir á jörðu, skal leyst verða í himnunum". (Matt. 16, 17-19). Kirkjur helgaðar Pétri eru f jölmargar í kristn-inni, Skálholtsdómkirkja var helguð honum. Dagur hans er 29. júní. Ef Pétur er fulltrúi prestanna, kennimann-anna og leiðtoganna, þá er Andrés fulltrúi trú-aðra leikmanna allra tíma. í 1. kafla Jóhannes-arguðspjalls er því lýst, er Andrés fór á eftir Jesú til að kynnast honum, síðan segir: „Hann finnur fyrst bróður sinn Símon, og segir við hann: Við hófum fundið Messías... og hann fór með hann til Jesú". Hann var ekki einn af þeim, sem eiga bara sína trú fyrir sig. Eins og hinir postularnir var Andrés líflátinn fyrir trú sína, krossfestur á X laga krossi, og segir sagan, að hann hafi hangið tvo sólarhringa á krossinum og prédikað fagnaðarerindið fyrir Iýðnum áður en hann lést. Það hefur verið áhrifarík ræða. Merki Andrésar er X laga kross. Hann var verndardýrlingur fiskimanna, einkum við neta-veiði. Andrés yar þjóðardýrlingur Skota, en alls voru 16 kirkjur hér á landi helgaðar hon-um. Dagur hans er 30. nóvember. Siðbótin afnam alla dýrkun helgra manna, þótt siðbótarmenn legðu áherslu á, að lífi þeirra, minningu og fordæmi væri sýnd til-hlýðileg virðing. Landakirkja, sem fyrst var reist 1573 er því ekki helguð neinum dýrlingi sérstaklega. En vel má kalla hana arftaka Klem-ensarkirkju, og síðar kirkna Andrésar og Nik-ulásar, eftir að þær hurfu. Ekki er úr vegi að minnast þessa, og þá um leið þess sess, sem kirkjan hefur átt í lífi og trú sjómanna hér í Eyjum um aldir.