„Guðjón Ármann Eyjólfsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 2: | Lína 2: | ||
Guðjón Ármann lauk barnaskólaprófi í Vestmannaeyjum og lauk prófi úr [[Gagnfræðiskóli Vestmannaeyja|Gagnfræðaskólanum]] árið 1951 með góða einkunn. Hann hóf þá nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1955 úr máladeild. Ári síðar lauk hann svo stúdentaprófi úr stærðfræðideild sem hann leit á sem undirbúning fyrir frekara nám. | Guðjón Ármann lauk barnaskólaprófi í Vestmannaeyjum og lauk prófi úr [[Gagnfræðiskóli Vestmannaeyja|Gagnfræðaskólanum]] árið 1951 með góða einkunn. Hann hóf þá nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1955 úr máladeild. Ári síðar lauk hann svo stúdentaprófi úr stærðfræðideild sem hann leit á sem undirbúning fyrir frekara nám. | ||
Guðjón Ármann fór erlendis í nám í sjómannafræðum sem hann lauk seint á árinu 1960. Að loknu námi hélt Guðjón Ármann heim til Íslands og starfaði hann fyrir Landhelgisgæsluna. | |||
{{Heimildir| | |||
* Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1961. }} | |||
[[Flokkur:Fólk]] |
Útgáfa síðunnar 3. júlí 2006 kl. 11:20
Guðjón Ármann Eyjólfsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann var sonur Guðrúnar Brandsdóttur og Eyjólfs Gíslasonar að Bessastöðum í Vestmannaeyjum. Eyjólfur var um áraraðir einn fremsti formaður Eyjanna og aflamaður mikill og Guðrún var listfeng hannyrðakona.
Guðjón Ármann lauk barnaskólaprófi í Vestmannaeyjum og lauk prófi úr Gagnfræðaskólanum árið 1951 með góða einkunn. Hann hóf þá nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1955 úr máladeild. Ári síðar lauk hann svo stúdentaprófi úr stærðfræðideild sem hann leit á sem undirbúning fyrir frekara nám.
Guðjón Ármann fór erlendis í nám í sjómannafræðum sem hann lauk seint á árinu 1960. Að loknu námi hélt Guðjón Ármann heim til Íslands og starfaði hann fyrir Landhelgisgæsluna.
Heimildir
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1961.