„Helmut Stolzenwald“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Gustav ''Helmut'' Rudolf Stolzenwald''' klæðskerameistari fæddist 24. febrúar 1901 og lést 5. febrúar 1958.<br> Foreldrar hans voru Gustav Helmut Rudolf Stolzenwald klæðsk...)
 
m (Verndaði „Helmut Stolzenwald“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. febrúar 2018 kl. 15:36

Gustav Helmut Rudolf Stolzenwald klæðskerameistari fæddist 24. febrúar 1901 og lést 5. febrúar 1958.
Foreldrar hans voru Gustav Helmut Rudolf Stolzenwald klæðskerameistari í Berlín, og kona hans Minna Stolzenwald húsfreyja.

Helmut nam klæðskeraiðn í Þýskalandi, kom til Eyja í fyrstu 1923, en til fulls 1926.
Hann starfaði við iðn sína í Eyjum uns þau Ragnhildur fluttust til Hellu um 1942.
Þau Ragnhildur eignuðust Rudolf á Lundi 1928, giftu sig 1929, bjuggu í Bifröst í nokkur ár. Ragnhildur veiktist af berklum og þurfti að dvelja á Vífilsstöðum í 7 ár. Afi Rudolfs sótti hann og fór með hann til Þýskalands, þar sem hann dvaldi meðan móðir hans var á Vífilsstöðum. Þau Helmut og Ragnhildur fóru til Þýskalands rétt fyrir stríð og sóttu drenginn.
Þau bjuggu á Sólvangi 1940.
Fjölskyldan fluttist að Hellu, þar sem Helmut rak klæðskeraverkstæði.
Hann lést 1958. Ragnhildur fluttist til Reykjavíkur. Hún lést 1993.

I. Kona Helmuts, (24. desember 1929), var Ragnhildur Þórarinsdóttir frá Lundi, húsfreyja, f. 23. október 1908, d. 29. mars 1993.
Barn þeirra:
1. Rudolf Stolzenwald klæðskerameistari á Hellu, f. 23. ágúst 1928 á Lundi, d. 1. maí 1987.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 3. apríl 1993. Minning Ragnhildar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sólveig Stolzenwald.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.