„Óskar Guðjónsson (Strandbergi)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Óskar Guðjónsson (Strandbergi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 3: | Lína 3: | ||
Börn Guðjóns Júlíusar og Guðbjargar voru:
| Börn Guðjóns Júlíusar og Guðbjargar voru:

1. [[Magnús Guðjón Guðjónsson]] rakarameistari, f. 31. desember 1907 í Sjólyst, d. 24. júní 1956 | 1. [[Magnús Guðjón Guðjónsson]] rakarameistari í Keflavík, f. 31. desember 1907 í Sjólyst, d. 24. júní 1956.

2. Svava Jónfríður Guðjónsdóttir, f. 26. ágúst 1909 á Strandbergi, d. 18. febrúar 1911 á Strandbergi.
| 2. Svava Jónfríður Guðjónsdóttir, f. 26. ágúst 1909 á Strandbergi, d. 18. febrúar 1911 á Strandbergi.

3. [[Svava Guðjónsdóttir (Stafnsnesi)|Svava Guðjónsdóttir]] húsfreyja, f. 8. febrúar 1911 á Strandbergi, síðast í Reykjavík, d. 10. nóvember 1991.
| 3. [[Svava Guðjónsdóttir (Stafnsnesi)|Svava Guðjónsdóttir]] húsfreyja, f. 8. febrúar 1911 á Strandbergi, síðast í Reykjavík, d. 10. nóvember 1991.

Útgáfa síðunnar 14. janúar 2017 kl. 16:37
Jóhann Óskar Guðjónsson frá Strandbergi, verkamaður fæddist 19. september 1913 á Strandbergi og lést 5. mars 1992.
Foreldrar hans voru Guðjón Júlíus Guðjónsson frá Sjólyst, útvegsbóndi, síðar málari í Reykjavík, f. 6. júlí 1884, d. 26. september 1952, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. febrúar 1887 á Miðsitju í Miklabæjarsókn í Skagafirði, d. 2. febrúar 1919.
Börn Guðjóns Júlíusar og Guðbjargar voru:
1. Magnús Guðjón Guðjónsson rakarameistari í Keflavík, f. 31. desember 1907 í Sjólyst, d. 24. júní 1956.
2. Svava Jónfríður Guðjónsdóttir, f. 26. ágúst 1909 á Strandbergi, d. 18. febrúar 1911 á Strandbergi.
3. Svava Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 8. febrúar 1911 á Strandbergi, síðast í Reykjavík, d. 10. nóvember 1991.
4. Laufey Guðbjörg Guðjónsdóttir, f. 12. apríl 1912 á Strandbergi, d. 26. júlí 1982. Hún ólst upp hjá frænda sínum Tómasi í Höfn og konum hans, Hjörtrós Hannesdóttur og síðan Sigríði Magnúsdóttur.
5. Jóhann Óskar Guðjónsson verkamaður á Suðurnesjum, f. 19. september 1913 á Strandbergi, d. 5. mars 1992.
Guðbjörg móðir Óskars lést, er hann var á sjötta árinu.
Hann fór í fóstur að Skaftárdal á Síðu og var þar fram yfir fermingu.
Óskar fluttist í Voga á Vatnsleysuströnd og var vinnumaður, landverkamaður hjá Sigurjóni Waage útvegsbónda í Stóru-Vogum.
Þau Ragnheiður hófu búskap í Keflavík, en fluttust í Voga og bjuggu þar meðan hún lifði. Þau eignuðust tvö börn. Ragnheiður lést 1987.
Óskar vann hjá Aðalverktökum á Keflavíkurvelli í 28 ár.
Hann lést 1992.
I. Kona Óskars var Ragnheiður Gróa Vormsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1922, d. 4. september 1987.
Börn þeirra:
1. Bjarndís Steinþóra Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 11. október 1950. Maður hennar var Páll Sævar Kristinsson, f. 28. apríl 1948, d. 11. október 1996.
2. Inga Ósk Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1953. Maður hennar: Jónas Jónsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 13. mars 1992. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.