„Jón Einarsson (kennari)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|100px|''Jón Einarsson kennari. '''Jón Einarsson''' vélstjóri, kennari, forstöðumaður fæddist 16. október 1923 á Raufarhöfn og l...) |
m (Verndaði „Jón Einarsson (kennari)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 24. október 2016 kl. 11:33
Jón Einarsson vélstjóri, kennari, forstöðumaður fæddist 16. október 1923 á Raufarhöfn og lést 29. júlí 1993.
Foreldrar hans voru Einar Baldvin Jónsson kaupmaður á Raufarhöfn, f. 25. ágúst 1894 á Hraunum í Fljótum í Skagafirði, d. 6. febrúar 1968, og kona hans Hólmfríður Árnadóttir húsfreyja, kirkjuorganisti, f. 19. september 1904 á Brekku í Núpasveit í N-Þing., d. 17. júlí 1992.
Jón var við nám í MA 1938-1940, lauk Iðnskólanum í Reykjavík 1948, iðnnámi í Landssmiðjunni 1949, vélstjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1950 og rafmagnsdeild 1951. Hann lauk einnig námi í uppeldis- og kennslufræðum í KHÍ 1976.
Hann var vélstjóri hjá Skipadeild SÍS 1951-1953, starfaði hjá Rederi AB Westhor í Kalmar í Svíþjóð 1953-1954, hjá Landhelgisgæslunni 1954-1966, en var síðan kennari við Vélskóla Íslands til dauðadags.
Hann var forstöðumaður Vélskóla Íslands í Eyjum 1968-1972.
Kona hans, (18. júlí 1949), var Vilborg Berentsdóttir húsfreyja, f. 24. júlí 1919 í Reykjavík, d. 29. apríl 2009.
Barn þeirra:
1. Hólmfríður Jónsdóttir húsfreyja í Mosfellsbæ, f. 26. júní 1952.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Vélstjóratal 1911-1972. Óskar Ingimarsson. Reykjavík. Vélstjórafélag Íslands.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.