„Guðmundur Guðmundsson (Lambhaga)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 13: | Lína 13: | ||
2. Andvana stúlka, f. 28. janúar 1908.
| 2. Andvana stúlka, f. 28. janúar 1908.

3. [[Sigríður Lilja Guðmundsdóttir]], f. 30. ágúst 1911.
| 3. [[Sigríður Lilja Guðmundsdóttir]], f. 30. ágúst 1911.

4. [[Ragnhildur Ásta Guðmundsdóttir]] ljósmóðir, f. 30. ágúst 1911, d. 17. mars 1995.

{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*[[Minningarrit]]. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz MCMLII. | *[[Minningarrit]]. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz MCMLII. |
Útgáfa síðunnar 27. apríl 2016 kl. 21:36
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðmundur Guðmundsson“
Guðmundur Guðmundsson sjómaður í Lambhaga, fæddist 10. júlí 1874 og drukknaði 10. janúar 1912.
Foreldrar hans voru Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 1846 og Guðmundur Brandsson, f. 1846, síðar búandi hjón í Seli í A-Landeyjum.
Meðal systkina Guðmundar í Lambhaga var Geir á Geirlandi.
Guðmundur var háseti á v/b Íslandi hjá mági sínum Sigurði í Frydendal. Þann 10. janúar 1912 reri skipshöfnin út að bátnum á bóli til að aðgæta öryggi hans í ofveðri, sem geisaði. Á leiðinni út að bátnum fórst hún. Hana skipuðu, auk Sigurðar og Guðmundar, Magnús Ingimundarson á Hvoli, Einar Halldórsson í Sandprýði, Hans Einarsson og Vilhjálmur Jónsson frá Norðfirði. Öll líkin rak.
Kona Guðmundar var Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1874, d. 15. ágúst 1962.
Börn þeirra voru:
2. Andvana stúlka, f. 28. janúar 1908.
3. Sigríður Lilja Guðmundsdóttir, f. 30. ágúst 1911.
4. Ragnhildur Ásta Guðmundsdóttir ljósmóðir, f. 30. ágúst 1911, d. 17. mars 1995.
Heimildir
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz MCMLII.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur Gunnarshólma 1999.
- Manntal 1920.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.