„Margrét Jónína Markúsdóttir“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Margrét Jónína Markúsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 28: | Lína 28: | ||
[[Flokkur: Íbúar í Hólshúsi]] | [[Flokkur: Íbúar í Hólshúsi]] | ||
[[Flokkur: Vesturfarar]] | [[Flokkur: Vesturfarar]] | ||
[[Flokkur: Mormónar]] |
Útgáfa síðunnar 31. janúar 2016 kl. 20:17
Margrét Jónína Markúsdóttir húsfreyja í Utah fæddist 21. nóvember 1879 og lést 6. febrúar 1925 Vestnahafs.
Foreldrar hennar voru Markús Vigfússon frá Hólshúsi, f. 25. desember 1851 í Danmörku, d. 8. desember 1921 í Utah, og kona hans Guðríður Woolf (Vigfússon) húsfreyja, f. 26. apríl 1858, d. í desember 1933 Vestanhafs.
Margrét Jónína var með móður sinni og fjölskyldu hennar í Litlabæ 1880.
Hún fluttist með foreldrum sínum, systkinum og Valgerði móðurmóður sinni, til Vesturheims 1886.
Maður hennar var Eggert Guðmundur Ólafsson frá Götu, bóndi og járnbrautarstarfsmaður í Utah, f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918 í Spanish Fork. Margrét var síðari kona hans.
Þau báru ættarnafnið Olson.
Börn þeirra voru:
1. Pauline Margret.
2. Edna.
3. David Reed, dó á 1. ári.
4. Anna.
5. Ginnie J.
6. William Andrew.
7. Oliver Edward.
8. Sophia Elizabeth (Beth).
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Utah Icelandic Settlement, vefrit.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.