„Jens Christian Thorvald Abel“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Jens Christian Thorvald Abel''' kaupmaður í [[ | '''Jens Christian Thorvald Abel''' kaupmaður í [[Godthaabverzlun]], - skrifað Jens Christjan Dorval í prestþj.bók, nefndur Thorvald Abel í Eyjum -, fæddist 24. maí 1823 á [[Vesturhús]]um og mun hafa látist í Danmörku.

Foreldrar hans voru [[Johan Nikolai Abel]] sýslumaður og kona hans [[Diderikke Abel]] húsfreyja. | Foreldrar hans voru [[Johan Nikolai Abel]] sýslumaður og kona hans [[Diderikke Abel]] húsfreyja. | ||
Thorvald ólst upp í Eyjum. Hann var höndlunarþjónn í Godthaab 1844, keypti verslunina ásamt mági sínum Jens Thomsen Christensen 10. júní 1847. Kaupverðið var 13.000 ríkisbankadalir í silfri, en þeir höfðu greitt kaupverðið að fullu árið 1855.
| Thorvald ólst upp í Eyjum. Hann var höndlunarþjónn í Godthaab 1844, keypti verslunina ásamt mági sínum [[Jens Thomsen Christensen]] 10. júní 1847. Kaupverðið var 13.000 ríkisbankadalir í silfri, en þeir höfðu greitt kaupverðið að fullu árið 1855.

Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana | Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana [[Hans Edvard Thomsen]].

Þau Jóhanna eignuðust 5 börn, en misstu elsta barnið á öðru ári.
| Þau Jóhanna eignuðust 5 börn, en misstu elsta barnið á öðru ári.

Þegar [[Jóhann Bjarnasen]] verslunarstjóri lést 1845, tóku þau Jóhanna í fóstur yngsta barn hans og Sigríðar systur Jóhönnu, [[Emilie Geirlaug Augusta Bjarnasen|Augustu Bjarnasen]], f. 23. ágúst 1841. Hún fylgdi þeim úr landi.
| Þegar [[Jóhann Bjarnasen]] verslunarstjóri lést 1845, tóku þau Jóhanna í fóstur yngsta barn hans og Sigríðar systur Jóhönnu, [[Emilie Geirlaug Augusta Bjarnasen|Augustu Bjarnasen]], f. 23. ágúst 1841. Hún fylgdi þeim úr landi.

Útgáfa síðunnar 28. desember 2015 kl. 16:20
Jens Christian Thorvald Abel kaupmaður í Godthaabverzlun, - skrifað Jens Christjan Dorval í prestþj.bók, nefndur Thorvald Abel í Eyjum -, fæddist 24. maí 1823 á Vesturhúsum og mun hafa látist í Danmörku.
Foreldrar hans voru Johan Nikolai Abel sýslumaður og kona hans Diderikke Abel húsfreyja.
Thorvald ólst upp í Eyjum. Hann var höndlunarþjónn í Godthaab 1844, keypti verslunina ásamt mági sínum Jens Thomsen Christensen 10. júní 1847. Kaupverðið var 13.000 ríkisbankadalir í silfri, en þeir höfðu greitt kaupverðið að fullu árið 1855.
Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana Hans Edvard Thomsen.
Þau Jóhanna eignuðust 5 börn, en misstu elsta barnið á öðru ári.
Þegar Jóhann Bjarnasen verslunarstjóri lést 1845, tóku þau Jóhanna í fóstur yngsta barn hans og Sigríðar systur Jóhönnu, Augustu Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841. Hún fylgdi þeim úr landi.
Fjölskyldan bjó í Godthaab, en við fæðingu yngsta barnsins 1859 bjuggu þau í Stakkagerði. Við sóknarmannatal 1859 voru þau hinsvegar búsett í Garðinum og þaðan fluttust þau úr landi 1860.
Kona Thorvalds Abels, (30. ágúst 1844), var Jóhanna Jónsdóttir Abel húsfreyja, f. 4. júní 1819.
Börn þeirra hér:
1. Dideriche Johanne Sigríður Abel, f. 4. september 1844 í Godthaab, d. 29. júlí 1846 „af Barnaveikin og umgangsveiki“. (Fæðingar hennar er aðeins getið í karlaskrá prestþjónustubókar).
2. Johan Christopher, f. 19. júlí 1846, d. 28. júlí 1846 úr ginklofa.
3. Johan Jes Abel, f. 17. september 1848 í Godthaab.
4. Didrikke Jensine Augusta, f. 13 janúar 1851 í Godthaab.
5. Jóhanna Björg Þóra Sigríður Abel, f. 10. febrúar 1856 í Godthaab.
6. Jonine Ragnheiður Kristine Abel, f. 23. febrúar 1859 í Stakkagerði.
Fósturdóttir þeirra var
7. Augusta Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.