„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1980/Eyjafiskur“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: <big><big>'''Eyjafiskur''' </big></big> Kristján Sigurjónsson og kona hans Margrét Ólafsdóttir, ásamt börnum sínum og tengdabörnum stofnsettu fyrirtækið [[Eyjafisk...) |
m (Kristinsigurlas færði Sjómannadagsblað Vestmannaeyja/Eyjafiskur á Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1980/Eyjafiskur) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 24. nóvember 2015 kl. 14:10
Eyjafiskur
Kristján Sigurjónsson og kona hans Margrét Ólafsdóttir, ásamt börnum sínum og tengdabörnum stofnsettu fyrirtækið Eyjafisk, sem einkum hefur sérhæft sig í framleiðslu á svonefndum bitafiski. Hefur reksturinn gengið vel enda stenst framleiðslan fyllilega samanburð við það besta annars staðar á landinu. Fyrirtækið er til húsa við Kirkjuveginn bak við gömlu bókabúðina og er þar orðin hin ágætasta aðstaða við vinnsluna. Á jarðhæð er móttaka, flökun og 16 fermetra frystir. Á annarri hæð er þurrkklefi, minni frystir og pökkunaraðstaða, kaffistofa, snyrting og lítil skrifstofa. Nú getur fyrirtækið unnið um 500 pakkningar daglega af bita-fiski en auk þess er bæði nýr og saltaður fiskur settur í neytendapakkningar og seldur héðan. Alls vinna fimm manns við fyrirtækið.