„Halldóra Guðmundsdóttir (Gerði)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 15: | Lína 15: | ||
*Íslendingabók.is. | *Íslendingabók.is. | ||
*Manntöl.}} | *Manntöl.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Vinnukonur]] | [[Flokkur: Vinnukonur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 18. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 18. öld]] |
Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2015 kl. 21:09
Halldóra Guðmundsdóttir vinnukona fæddist í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1793 og lést 16. maí 1863.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Árnason bóndi í Berjanesi 1801, f. 1767, sonur Árna „eldri‟ Ísleikssonar klausturhaldara og lögréttumanns í Mörtungu á Síðu Ólafssonar, og kona Guðmundar Árnasonar, Kristín Jónsdóttir húsfreyja, ættuð úr Holtum, f. 1763, d. fyrir manntal 1816.
Halldóra var með foreldrum sínum í Berjanesi 1801, með ekklinum föður sínum þar 1816.
Hún var vinnukona í Steinum þar 1835 með barn sitt Vilborgu Guðmundsdóttur hjá sér.
Við manntal 1845 var hún vinnukona á Teigi í Fljótshlíð, í Bollakoti þar 1850.
Halldóra fluttist að Gerði 1858 frá Teigi og var vinnukona á Gjábakka 1860.
Hún lést 1863 á Oddsstöðum, ógift vinnukona.
I. Barnsfaðir Halldóru var Guðmundur Hávarðsson í Steinmóðshúsi, f. 1810, d. 28. maí 1860.
Barn þeirra:
Vilborg Guðmundsdóttir vinnukona, f. 8. september 1834, d. 26. júní 1887.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.