„Jóhanna Björnsdóttir (Kuðungi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jóhanna Björnsdóttir''' bústýra í Kufungi, síðar húsfreyja í Kirkjudal fæddist 26. september 1865 í Hólasókn u. Eyjafjöllum og lést 10...)
 
m (Verndaði „Jóhanna Björnsdóttir (Kuðungi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 14. júlí 2015 kl. 11:32

Jóhanna Björnsdóttir bústýra í Kufungi, síðar húsfreyja í Kirkjudal fæddist 26. september 1865 í Hólasókn u. Eyjafjöllum og lést 10. september 1943.
Foreldrar hennar voru Björn Björnsson vinnumaður á Raufarfelli, f. 4. ágúst 1830, d. 11. október 1912, og barnsmóðir hans Guðrún Jónsdóttir vinnukona þar, f. 18. nóvember 1836, d. 5. janúar 1920

Jóhanna var 5 ára á Eyvindarhólum 1870, og þá var móðir hennar vinnukona þar. Björn Björnsson var þar vinnumaður.
Hún var 14 ára niðursetningur á Sitjanda u. Eyjafjöllum 1880.
Jóhanna giftist Gísla Gíslasyni 1892, en þau voru þá bæði vinnuhjú á Holtsvelli. Þau eignuðust 3 börn, en Gísli lést 1895, áður en 3. barnið fæddist.
Gísli mun hafa stundað sjóróðra frá Suðurnesjum á þessum árum, en Guðrún var vinnukona. Hún var vinnukona í Indriðakoti u. Fjöllunum 1890, var í Indriðakoti þar 1891, í húsmennsku með Gíslai í Björnskoti 1893. Eftir lát Gísla 1895 var hún í vinnumennsku, en börnunum var komið í fóstur. 1896 fór hún að Eystri-Skógum, var í Efra-Hólakoti 1899, er hún eignaðist barn með Sigurði Jónssyni vinnumanni, var vinnukona á Eyvindarhólum hjá sr. Jes A. Gíslasyni 1901.
Jóhanna fluttist með Sigríði dóttur sína frá Eyvindarhólum að Berjaneshjáleigu í V-Landeyjum 1902, fluttist til Eyja frá Fíflholtshjáleigu þar 1904, en Sigríður kom þaðan til hennar 1910.
Jóhanna var bústýra hjá Hjálmari Ísakssyni skipasmið, ekkli í Kuðungi (Kufungi). Þau giftust 1914.
Hjálmar reisti Kirkjudal við Skólaveg 1920 og þar bjuggu þau meðan Hjálmar lifði, en hann lést 1929. Þau Hjálmar voru barnlaus.
Hún fluttist til Reykjavíkur, var þar bústýra 1930.
Jóhanna lést 1943.

I. Maður Jóhönnu, (27. júlí 1892), var Gísli Gíslason bóndi, sjómaður, f. 1. mars 1857, d. 4. maí 1895. Hann „dó við sjóróðra í Húsatóftum“ í Grindavík.
Börn þeirra voru:
1. Guðrún Gísladóttir vinnukona á Núpi u. Fjöllunum 1910, f. 18. mar 1891 í Indriðakoti, d. 12. nóvember 1925.
2. Magnea Gísladóttir húsfreyja á Akri 1930, f. 7. júní 1893 í Björnskoti, d. 10. febrúar 1975. Sambýlismaður hennar á Akri var Guðmundur Gunnarsson.
3. Gíslína Gísladóttir húsfreyja á Herjólfsgötu 5 1930, f. 1. október 1895, d. 27. maí 1972. Maður hennar var Guðlaugur Kristjánsson.

II. Barnsfaðir Jóhönnu var Sigurður Jónsson vinnumaður í Skarðshlíð.
Barn þeirra var
4. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja á Álftanesi, f. 5. nóvember 1899, d. 1. febrúar 1971.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.