„Herjólfsdalur“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Herjólfsdalur''' er líklega þekktasti dalur Vestmannaeyja. Hann stendur norð-vestarlega á [[Heimaey]] og er umlukinn fjöllum norðan- og austanmegin — [[Dalfjall]] og [[Moldi]]. Í dalnum eru mörg þekkt kennileiti svo sem [[Saltaberg]], [[Fjósaklettur]], [[Kaplagjóta]] og [[Torfmýri]]. Á toppi Dalfjalls að vestanverðu stendur [[Blátindur]], en [[Fiskhellanef]] stendur hæst á [[Moldi|Molda]] vestan megin, rétt ofan við [[Fiskhellar|Fiskhella]]. Syðst í Herjólfsdal má finna [[Hundraðmannahellir|Hundraðmannahelli]] og vestast er [[Mormónapollur]] rétt suður af Kaplagjótu. Í miðjum dalnum má finna Tjörnina, sem er tengdur við vatnslind. | |||
Í mörgum gömlum heimildum er dalurinn kallaður '''Dalver'''. | |||
:''„Dalur þessi er á þrjá vegu luktur hamrafjöllum 6-700 feta háum. Neðan undir hömrunum eru víða grænar brekkur og tjörn í miðjum dalnum.“'' (Þjóðólfur, 26. árgangur, bls 196) | |||
== Bær Herjólfs == | |||
Í Herjólfsdal er talið að fyrsta býli Heimaeyjar hafi verið reist af landnámsmanninum [[Herjólfur Bárðason|Herjólfi Bárðasyni]], sem dalurinn er kenndur við. Sagt er í ''Landnámu'' (''Melabók'' og ''Hauksbók''): | |||
:„''Herjólfur son Bárðar Bárekssonar, bróðir Hallgríms sniðbaka, byggði fyrst Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfsdal fyrir innan Ægisdyr, þar sem nú er hraun brunnið. Hans son var Ormur aurgi, er bjó á Ormsstöðum við Hamar niðri, þar sem nú er blásið allt, og átti einn allar eyjarnar. Þær liggja fyrir Eyjasandi, en áður var þar veiðistöð og engra manna veturseta.''“ | |||
Sturlubók segir að Ormur hafi verið fyrsti landnámsmaður Vestmannaeyja, en ekki Herjólfur faðir hans. Flestir telja þó frásögn Melabókar og Hauksbókar réttari. | |||
Sagan um [[Vilborg og Hrafnarnir|Vilborg og Hrafnana]] er ein þekktasta þjóðsagan úr Herjólfsdal, en hún segir frá miklu grjóthruni undan Molda sem lagði byggð í eyði þar. Rannsóknir hafa bent til þess að sagan eigi við lítil rök að styðjast, þar sem að byggð gat varla verið svo ofarlega í brekkunni. | |||
== Vatnslindin == | |||
Vatnslindin í Herjólfsdal er ein þriggja náttúrulegra vatnslinda á Heimaey, hinar tvær verandi [[Vilpa]], sem nú er undir hrauni, og lindin í [[Stórhöfði|Stórhöfða]], sem gefur lítið af sér. Árið 2005 fundust gamlir farvegir frá lindinni sem leiddu vatnið í tjörnina, en þeirra er getið í ýmsum gömlum heimildum. | |||
== Þjóðhátíð == | |||
[[Mynd:Tjodhatid DSCF0401.jpg|thumb|280px|Þjóðhátíð í blíðskaparveðri]] | |||
[[Þjóðhátíð]] hefur ætíð verið haldin í Herjólfsdal þegar að hún hefur verið haldin á annað borð, að undanskildum árunum 1973 og 1974, þegar að hún fluttist að [[Breiðabakki|Breiðabakka]] vegna þess að dalurinn var illa farinn eftir [[Heimaeyjargosið|gosið]]. | |||
Á fyrstu Þjóðhátíðinni, sem haldin var árið 1874 í tilefni af setningu fyrstu stjórnarskrár Íslendinga, var veisluborð hlaðið úr torfi og grjóti, en það sjást enn leifar af því í vestanverðum dalnum. Eftir það var Þjóðhátíð haldin öðru hvoru fram til upphafs 5. áratugs 20. aldar, en frá þeim tíma hefur hún verið haldin árlega. | |||
{{Heimildir| | |||
* Árbók Ferðafélags Íslands 1948. | |||
* Þjóðólfur, 31. ágúst 1874. [http://www.timarit.is/?issueID%3D314499&pageSelected%3D5&lang%3D0] | |||
}} | |||
[[Flokkur:Örnefni]] | |||
[[Flokkur:Dalir]] |