„Guðmundur Hreiðarsson (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Guðmundur Hreiðarsson''' vinnumaður fæddist 1774 í Ömpuhjalli og lést 18. mars 1846 á Ofanleiti. <br> Ætt hans er ókunn, en nokkur Hreiðarsbörn vo...) |
m (Verndaði „Guðmundur Hreiðarsson (Vesturhúsum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. mars 2015 kl. 18:18
Guðmundur Hreiðarsson vinnumaður fæddist 1774 í Ömpuhjalli og lést 18. mars 1846 á Ofanleiti.
Ætt hans er ókunn, en nokkur Hreiðarsbörn voru í Eyjum, fædd á 18. öld. Hreiðar Hreiðarsson var bóndi þar, kunnur faðir nokkurra þeirra og líklegur faðir annarra.
Guðmundur var vinnumaður víða í Eyjum, á Vesturhúsum 1801, í Norðurgarði 1813. Hann hefur að líkindum misst heilsu og ekki getað séð sér farborða frá fertugsaldri, því að hann var niðursetningur frá þeirri stundu, niðursetningur á Ofanleiti 1814-1825, í Kornhól 1828-1829, í Jónshúsi 1830, í Norðurgarði 1833 í Stakkagerði 1835, og hann lést 75 ára niðursetningur á Ofanleiti 1846.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.