„Magnús Sveinsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Magnús Sveinsson''' skipstjóri fæddist 27. júlí 1805 á Vífilsmýri í Önundarfirði og drukknaði 28. september 1835 í Eyjum.<br> Foreldrar hans voru Sveinn Oddsson frá T...)
 
m (Verndaði „Magnús Sveinsson (skipstjóri)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. febrúar 2015 kl. 18:31

Magnús Sveinsson skipstjóri fæddist 27. júlí 1805 á Vífilsmýri í Önundarfirði og drukknaði 28. september 1835 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Sveinn Oddsson frá Tungu í Önundarfirði, vinnumaður á Vífilsmýri í Önundarfirði, f. 1779, d. í mannskaðanum á Önundarfirði 6. maí 1812, og Kristín Magnúsdóttir frá Görðum í Önundarfirði, húsfreyja á Vífilsmýri 1816, f. 1777 í Ytri-Hjarðardal, d. 9. júní 1834.

Magnús var með móður sinni og Indriða Jónssyni stjúpföður sínum 1816.
Hann fluttist frá Kaupmannahöfn að Godthaab 1834, stýrimaður, 29 ára. Þar voru einnig Hans Christian Rasmussen og Börre Sivertsen.
Þeir drukknuðu allir 28. september 1835.


Heimildir