„Magnús Ísleifsson (London)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 23. nóvember 2015 kl. 18:44

Magnús Ísleifsson fæddist 8. ágúst 1875 og lést 25. ágúst 1949. Hann bjó í húsinu London við Miðstræti.

Eiginkona hans var Magnúsína Guðmundsdóttir. Börn þeirra voru Sigríður, Guðmundur, Unnur Halla, Þorsteinn Magnússon og Ísleifur.

Magnús var trésmíðameistari og kom að byggingu margra húsa í Vestmannaeyjum. Þar á meðal Hof við Landagötu, Borg og Bólstaðarhlíð við Heimagötu og síðast en ekki síst breytingar sem hann stjórnaði á Landakirkju árið 1903.

Myndir