„Jórunn Erlendsdóttir (Ólafshúsum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Jórunn Erlendsdóttir''' húsfreyja í Ólafshúsum, fæddist 13. júní 1876 á Skíðabakka í A-Landeyjum og lést 28. desember 1963.<br> Foreldrar hennar voru Erlendur Er...) |
m (Verndaði „Jórunn Erlendsdóttir (Ólafshúsum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 14. febrúar 2015 kl. 18:23
Jórunn Erlendsdóttir húsfreyja í Ólafshúsum, fæddist 13. júní 1876 á Skíðabakka í A-Landeyjum og lést 28. desember 1963.
Foreldrar hennar voru Erlendur Erlendsson bóndi á Skíðabakka (Austurbænum), A-Landeyjum, f. 7. september 1833, d. 19. nóvember 1904, og k.h. Oddný Árnadóttir húsfreyja, f. 10. október 1839, d. 31. mars 1905.
Jórunn var systir Guðrúnar vinnukonu í Ólafshúsum, f. 1879, og Oddnýjar húsfreyju í Dvergasteini, f. 1883, konu Magnúsar Magnússonar bátasmiðs og bæjarfulltrúa í Dvergasteini.
Maður Jórunnar var Jón Bergur Jónsson sjómaður og útvegsbóndi í Ólafshúsum. Jórunn var síðari kona hans.
Börn þeirra voru
1. Erlendur Oddgeir Jónsson, f. 1908.
2. Elín Jónsdóttir, f. 1910.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.is.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Prestþjónustubækur.