„Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 19: | Lína 19: | ||
[[Flokkur: Íbúar á Vesturhúsum]] | [[Flokkur: Íbúar á Vesturhúsum]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Jómsborg]] | [[Flokkur: Íbúar í Jómsborg]] | ||
[[Flokkur: Fjallhrapaðir]] |
Útgáfa síðunnar 7. desember 2014 kl. 15:22
Margrét Sveinsdóttir frá Vesturhúsum fæddist 1847 og hrapaði til bana úr Dalfjalli 30. maí 1882.
Foreldrar hennar voru Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879, og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1817, d. 8. október 1859.
Margrét var elst 6 barna hjónanna og það eina, sem náði fullorðins aldri.
Hún var með foreldrum sínum á Vesturhúsum og síðan með ekklinum föður sínum, en 1880 var hún vinnukona í Jómsborg hjá Engilbert Engilbertssyni og Jórunni Austmann.
Hún hrapaði 30. maí 1882 úr Dalfjalli á niðurleið á Hæltám og féll í Kaplagjótu.
I. Barnsfaðir Margrétar var Jón Pétursson, þá ókvæntur tómthúsmaður í Elínarhúsi, f. 2. maí 1849, hrapaði til bana úr Klifi 26. ágúst 1878.
Barn þeirra var
1. Andvana fætt sveinbarn 17. október 1875.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.