„Kristín Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Kristín Eiríksdóttir''' frá Vilborgastöðum, húsfreyja á Moldnúpi, Rimakoti og Skálakoti u. Eyjafjöllum, fæddist 1810 í Mýrdal og lést 20. jún...) |
m (Verndaði „Kristín Eiríksdóttir (Vilborgarstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 12. september 2014 kl. 21:29
Kristín Eiríksdóttir frá Vilborgastöðum, húsfreyja á Moldnúpi, Rimakoti og Skálakoti u. Eyjafjöllum, fæddist 1810 í Mýrdal og lést 20. júní 1874 í Skálakoti.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Eiríksson bóndi á Vilborgastöðum, f. 1783, d. 11. desember 1855, og fyrri kona hans Guðrún Runólfsdóttir húsfreyja, f. 1782, d. 19. ágúst 1843.
Kristín var fósturbarn í Sólheimahjáleigu í Mýrdal 1817, var með foreldrum sínum 1828.
Hún fluttist frá Vilborgarstöðum að Efri-Holtum u. Eyjafjöllum 1832, vinnukona.
Þau Sighvatur Magnússon giftust 1832 og 1835 var hún gift vinnukona hjá tengdaforeldrum sínum í Efri-Holtum með Sighvati og barninu Eiríki tveggja ára.
1840 var hún húsfreyja á Moldnúpi u. Eyjafjöllum, þar með Sighvati og börnunum Eiríki og Jóni.
1845 voru þau Sighvatur húsfólk á Moldnúpi með 4 börn sín. Við höfðu bæst Guðrún og Vigfús.
Þau eignuðust Magnús 1847, en hann dó nýfæddur.
Þau Sighvatur voru bændur á Moldnúpi 1850 og 1855, í Rimhúsum u. Eyjafjöllum 1860 og Skálakoti þar 1870.
Kristín lést 1874.
Maður Kristínar, (27. september 1832 ), var Sighvatur Magnússon bóndi í Efri-Holtum, f. 1809 í Efra-Holti, d. 12. júlí 1877 í Skálakoti. Foreldrar hans voru Magnús Bjarnason bóndi, f. 6. ágúst 1770, d. 14. janúar 1848, og kona hans Guðrún Sighvatsdóttir húsfreyja, f. 1769, d. 2. september 1858.
Börn þeirra hér:
1. Eiríkur Sighvatsson vinnumaður, f. 8. október 1833, drukknaði 30. mars 1859.
2. Jón Sighvatsson, f. 11. apríl 1836, d. 7. janúar 1860.
3. Guðrún Sighvatsdóttir, f. 13. desember 1840.
4. Vigfús Sighvatsson bóndi, f. 25. nóvember 1843.
5. Magnús Sighvatsson, f. 14. október 1847, d. 20. október 1847.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.