„Þuríður Jakobsdóttir (Dölum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þuríður Jakobsdóttir''' vinnukona í Dölum fæddist 3. mars 1801 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og lést 6. apríl 1859.<br> Foreldrar hennar voru Jakob Erlen...)
 
m (Verndaði „Þuríður Jakobsdóttir (Dölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. ágúst 2014 kl. 19:47

Þuríður Jakobsdóttir vinnukona í Dölum fæddist 3. mars 1801 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og lést 6. apríl 1859.
Foreldrar hennar voru Jakob Erlendsson vinnumaður á Lambafelli, f. 1764, og Kristín Oddsdóttir vinnukona frá Selkoti, f. 1766, d. 10. maí 1817.

Þuríður var niðursetningur í Ásólfsskála u. Eyjafjöllum 1816, vinnukona á Efri-Kvíhólma þar 1835.
Hún var komin að Dölum 1838, vinnukona þar, eignaðist barn þar síðla árs.
Þuríður fór frá Dölum í Landeyjar 1839. Þar var hún vinnukona í Fagurhól 1840, á Miðhúsum í Hvolhreppi 1845.
Hún lést 1859.

Barnsfaðir Þuríðar var Sigurður Jónsson, þá í Kastala, f. 1815, d. 22. ágúst 1848.
Barn þeirra var
1. Margrét Sigurðardóttir, f. 21. október 1838, d. 26. október 1838 úr ginklofa.


Heimildir