„Hansína Gunnarsdóttir Bjarnasen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Hansína Gunnarsdóttir Bjarnasen''' húsfreyja fæddist 11. mars 1887 og lést 2. nóvember 1973.<br> Foreldrar hennar voru Gunnar Einarsson kaupmaður á Hjalteyri við Eyjafjör...)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 18: Lína 18:
*Manntöl.
*Manntöl.
*Prestþjónustubækur.}}
*Prestþjónustubækur.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Húsfreyjur]]
[[Flokkur: Húsfreyjur]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]

Útgáfa síðunnar 16. ágúst 2015 kl. 20:01

Hansína Gunnarsdóttir Bjarnasen húsfreyja fæddist 11. mars 1887 og lést 2. nóvember 1973.
Foreldrar hennar voru Gunnar Einarsson kaupmaður á Hjalteyri við Eyjafjörð, f. 11. september 1853, d. 10. febrúar 1944, og kona hans Jóhanna Friðriksdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1864, d. 3. mars 1903.

Hansína var með foreldrum sínum á Hjalteyri 1890 og með þeim í Reykjavík 1901. Hún var verslunarkona hjá Jes Ziemsen, búandi hjá föður sínum í Reykjavík 1910.
Þau Jóhann bjuggu í Dagsbrún 1918 með barnið Anton Gísla Emil á 1. ári, en hann var skírður í Reykjavík, líklega af trúarástæðum. Jóhanna María var einnig skírð þar, en ekki er getið um skírnartíma né skírnarstað Gunnars Jóhannesar. Þau voru búsett í Laufási í Eyjum 1920 með Jóhanni og börnunum Antoni og Jóhönnu Maríu.
Þau Jóhann byggðu húsið við Brekastíg 32 1929-1930 og þar bjuggu þau síðan.
Hansína var kaþólskrar trúar, komin af kaþólíkum. Gunnar faðir hennar var heiðraður fyrir störf sín í þágu trúarinnar og bróðir hennar Jóhannes Tryggvi varð Hólabiskup 1943.

Maður Hansínu var Jóhann Antonsson Bjarnasen kaupmaður, f. 26. júní 1885 í Frydendal, d. 24. september 1953.

Börn þeirra hér:
1. Anton Gísli Emil Jóhannsson Bjarnasen, f. 30. ágúst 1918 í Dagsbrún, d. 23. júlí 1994.
2. Jóhanna María Jóhannsdóttir Bjarnasen, f. 19. nóvember 1919 í Laufási, d. 15. júní 1972.
3. Gunnar Jóhannes Jóhannsson Bjarnasen, f. 10. september 1922 í Laufási, d. 9. nóvember 1987.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.