„Emerentsíana Ásgeirsdóttir (Tómasarbæ)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Emerentíana Ásgeirsdóttir''' húsfreyja í Tómasarbæ 1703 fæddist 1643, á lífi 1704.<br> Emerentíana var húsfreyja í Tómasarbæ 1703 og skráð einn á...) |
m (Verndaði „Emerentsíana Ásgeirsdóttir (Tómasarbæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 13. júlí 2014 kl. 19:03
Emerentíana Ásgeirsdóttir húsfreyja í Tómasarbæ 1703 fæddist 1643, á lífi 1704.
Emerentíana var húsfreyja í Tómasarbæ 1703 og skráð einn ábúenda Ofanleitis 1704. Má ætla, að Tómasarbær hafi verið ein af hjáleigum Ofanleitis. Heimilismenn hennar voru 4 árið 1704.
Maður Emerentíönu var Jón Þorsteinsson bóndi í Tómasarbæ 1703, f. 1645, líklega látinn fyrir samantekt Jarðabókarinnar í maí 1704.
Vinnumaður hjá þeim Jóni 1703 var Dagstyggur Guðmundsson, síðar í Hólshúsi, og vinnukona var Helga Brynjólfsdóttir 18 ára.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn 1913-1917.
- Manntal 1703.