„Sigfús Maríus Johnsen“: Munur á milli breytinga
(Bætti við texta) |
(Smáviðbót) |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen''' fæddist í Vestmannaeyjum þann 28. mars 1886. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen kaupmaður og útvegsbóndi og Anna Sigríður Árnadóttir frá Hofi í Öræfum. Eiginkona Sigfúsar var [[Jarþrúður P. Johnsen|Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen]], fædd 3. júní 1890. Hún starfaði mikið og farsællega að ýmsum félagsmálum í [[Vestmannaeyjabær|Vestmannaeyjakaupstað]] og gat sér góðan orðstír fyrir þau störf. Jarþrúður lést í Vestmannaeyjum 9. október 1969. Sigfúsi og Jarþrúði varð ekki barna auðið, en fyrir þeirra kynni átti hann einn son, [[Baldur Johnsen]] lækni, f. 22. okt. 1910. Móðir Baldurs var [[Sigurveig Sveinsdóttir]] frá [[Sveinstaðir|Sveinsstöðum]]. | '''Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen''' fæddist í Vestmannaeyjum þann 28. mars 1886. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen kaupmaður og útvegsbóndi og Anna Sigríður Árnadóttir frá Hofi í Öræfum. Eiginkona Sigfúsar var [[Jarþrúður P. Johnsen|Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen]], fædd 3. júní 1890. Hún starfaði mikið og farsællega að ýmsum félagsmálum í [[Vestmannaeyjabær|Vestmannaeyjakaupstað]] og gat sér góðan orðstír fyrir þau störf. Jarþrúður lést í Vestmannaeyjum 9. október 1969. Sigfúsi og Jarþrúði varð ekki barna auðið, en fyrir þeirra kynni átti hann einn son, [[Baldur Johnsen]] lækni, f. 22. okt. 1910. Móðir Baldurs var [[Sigurveig Sveinsdóttir]] frá [[Sveinstaðir|Sveinsstöðum]] f. 10. janúar 1887 d. 21. mars 1972. | ||
Sigfús varð stúdent í Reykjavík árið 1907 og lauk lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1914. | Sigfús varð stúdent í Reykjavík árið 1907 og lauk lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1914. |
Útgáfa síðunnar 11. febrúar 2006 kl. 00:41
Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum þann 28. mars 1886. Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen kaupmaður og útvegsbóndi og Anna Sigríður Árnadóttir frá Hofi í Öræfum. Eiginkona Sigfúsar var Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen, fædd 3. júní 1890. Hún starfaði mikið og farsællega að ýmsum félagsmálum í Vestmannaeyjakaupstað og gat sér góðan orðstír fyrir þau störf. Jarþrúður lést í Vestmannaeyjum 9. október 1969. Sigfúsi og Jarþrúði varð ekki barna auðið, en fyrir þeirra kynni átti hann einn son, Baldur Johnsen lækni, f. 22. okt. 1910. Móðir Baldurs var Sigurveig Sveinsdóttir frá Sveinsstöðum f. 10. janúar 1887 d. 21. mars 1972.
Sigfús varð stúdent í Reykjavík árið 1907 og lauk lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1914.
Sigfús var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í Reykjavík frá árinu 1917 til 1940. Frá 1929 til 1936 starfaði hann jafnframt sem hæstaréttarritari, en árið 1940 varð hann bæjarfógeti í Vestmannaeyjum og gegndi þeirri stöðu í níu ár.
Þá stundaði Sigfús í þrjú ár fræðirannsóknir í Kaupmannahöfn um ættir Íslendinga í Danmörku. Hann skrifaði að auki nokkrar bækur, svo sem Saga Vestmannaeyja í tveimur bindum (Reykjavík 1946), Herleiddu Stúlkuna (Reykjavík 1960), Uppi var Breki, Svipmyndir úr Eyjum (Reykjavík 1968) og Yfir fold og flæði (Reykjavík 1972).
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja, I. bindi. Reykjavík, Fjölsýn forlag, 1989.