„Jórunn Sigurðardóttir (Löndum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Jórunn Sigurðardóttir (Löndum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip Merki: Breyting tekin til baka |
||
Lína 18: | Lína 18: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Íslendingabók.is.}} | *Íslendingabók.is.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Verkakonur]] | [[Flokkur: Verkakonur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] |
Útgáfa síðunnar 17. ágúst 2015 kl. 21:51
- Jórunn Sigurðardóttir.
Jórunn Sigurðardóttir vinnukona á Löndum, fæddist 24. nóvember 1881 á Lágafelli í A-Landeyjum og lést á Sjúkrahúsinu 8. júlí 1965.
Foreldrar hennar voru Sigurður Guðmundsson bóndi á Lágafelli í A-Landeyjum, síðar dvalarmaður á Uppsölum f. 13. ágúst 1842, d. 11. mars 1905 á Uppsölum í Eyjum og kona hans (15. maí 1873, skildu), Þórunn húsfreyja, f. 18. október 1839, d. 25. maí 1899, Sigurðardóttir.
Jórunn var 8 ára með móður sinni, fráskilinni vinnukonu, í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni) 1890.
Við manntal 1910 var hún skráð hjú á Löndum, en var fjarverandi á Eskifirði.
Jórunn var síðan vinnukona hjá hjónunum á Löndum, þeim Elínu Þorsteinsdóttur og Friðriki Svipmundssyni þeirra búskap, fylgdi síðan Elínu og var síðast með Friðriki og Erlu, uns hún var lögð inn á Sjúkrahúsið öldruð, og þar lést hún 1965.
„Hún fylgdi þrem barnakynslóðum stór-fjölskyldunnar, - pabba og systkinum hans, okkur systkinum og börnum okkar Erlu,“ sagði Friðrik.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Friðrik Ásmundsson.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.