„Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Margrét Sveinsdóttir''' frá Vesturhúsum fæddist 1847 og hrapaði til bana úr Dalfjalli 30. maí 1882.<br> Foreldrar hennar voru [[Sveinn Hjaltason (Vesturhúsum)|Svei...) |
m (Verndaði „Margrét Sveinsdóttir (Vesturhúsum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 12. mars 2014 kl. 18:30
Margrét Sveinsdóttir frá Vesturhúsum fæddist 1847 og hrapaði til bana úr Dalfjalli 30. maí 1882.
Foreldrar hennar voru Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879, og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1817, d. 8. október 1859.
Margrét var elst 6 barna hjónanna og það eina, sem náði fullorðins aldri.
Hún var með foreldrum sínum á Vesturhúsum og síðan með ekklinum föður sínum, en 1880 var hún vinnukona í Jómsborg hjá Engilbert Engilbertssyni og Jórunni Austmann.
Hún hrapaði 30. maí 1882 úr Dalfjalli á niðurleið á Hæltám og féll í Kaplagjótu.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.