„Gróa Helgadóttir (Draumbæ)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Gróa Helgadóttir''' vinnukona frá Draumbæ fæddist 3. nóvember 1851, fór til Vesturheims 1889.<br> Foreldrar hennar voru [[Helgi Jónsson (Draumbæ)|Helgi Jóns...) |
m (Verndaði „Gróa Helgadóttir (Draumbæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 7. mars 2014 kl. 22:23
Gróa Helgadóttir vinnukona frá Draumbæ fæddist 3. nóvember 1851, fór til Vesturheims 1889.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson bóndi í Draumbæ, f. 8. september 1806, d. 3. september 1885, og sambýliskona hans Sigríður Guðmundsdóttir í Draumbæ, f. 26. september 1813, drukknaði 29. september 1855.
Gróa missti móður sína tæpra 4 ára. Hún var fósturbarn í Elínarhúsi hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur ekkju og húsfreyju 1860, fósturdóttir Guðrúnar 1870.
Hún var vinnukona í Sjólyst 1880, en 1884 fór hún austur á land og var vinnukona á Galtastöðum fremri í Hróarstungu á Héraði.
Gróa eignaðist barn á Galtastöðum 1889. Hún fór til Vesturheims 1889 frá Galtastöðum fremri með barnið. Hún stefndi á Winnipeg í Kanada.
I. Barnsfaðir hennar þar var Jónas Jónasson.
Barn þeirra var
1. Jón Júlíus Jónasson, f. 16. nóvember 1889.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.