„Sveinn Jónsson (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sveinn Jónsson''' frá Þorlaugargerði fæddist 23. september 1815 á Grjótá í Fljótshlíð og hrapaði til bana úr Hamrinum 28. júní 1829.<br> Fo...)
 
m (Verndaði „Sveinn Jónsson (Þorlaugargerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 1. mars 2014 kl. 17:13

Sveinn Jónsson frá Þorlaugargerði fæddist 23. september 1815 á Grjótá í Fljótshlíð og hrapaði til bana úr Hamrinum 28. júní 1829.
Foreldrar hans voru Sigþrúður Jónsdóttir, síðar húsfreyja í Kastala og Þorlaugargerði, f. 1785, d. 8. mars 1860, og Jón Pétursson, þá vinnumaður á Butru í Fljótshlíð.

Hann var með móður sinni og fósturföður í Kastala 1821-1828 og í Þorlaugargerði 1828-29.
Móðurbróðir hans Jón Jónsson bóndi í Norðurgarði hrapaði úr Stórhöfða 21. ágúst 1851 og síðari maður móður hans Sigurður Sigurðsson bóndi í Þorlaugargerði hrapaði úr Stórhöfða 9. september 1844.
Þriðji maður móður hans Ólafur Ólafsson bóndi fórst við Landeyjasand 1850.


Heimildir