„Einar Jónsson eldri (Dölum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Einar Jónsson''' eldri sjávarbóndi í Dölum fæddist 1806 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 26. nóvember 1852.<br> Móðir hans var Ástríður húsfreyja í Berjanesi 18...)
 
m (Verndaði „Einar Jónsson eldri (Dölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. febrúar 2014 kl. 19:58

Einar Jónsson eldri sjávarbóndi í Dölum fæddist 1806 í Holtssókn u. Eyjafjöllum og lést 26. nóvember 1852.
Móðir hans var Ástríður húsfreyja í Berjanesi 1801, f. 1760, d. 10. júní 1840, Þorgeirsdóttir.
Móðir Ástríðar var María vinnukona, f. 1742 u. Eyjafjöllum, d. 9. júlí 1807, Oddsdóttir bónda á Fitjarmýri og Tjörnum u. Eyjafjöllum, síðan í Kirkjulandshjáleigu í A-Landeyjum, f. 1701, á lífi 1764, Eyjólfssonar, og konu Odds, Elínar húsfreyju, f. 1702, á lífi 1766, Þorbjörnsdóttur.

Einar var 10 ára niðursetningur í Skálakoti u. Eyjafjöllum 1816.
Hann var kvæntur bóndi í Dölum 1836 með Margréti.
Margrét lést 1848 og Einar kvæntist Dýrfinnu 1850.
Hann lést síðla árs 1852.
I. Fyrri kona Einars, (30. október 1835), var Margrét Guðmundsdóttir eldri í Dölum, d. 14. nóvember 1848.
Þau Einar voru barnlaus.

II. Síðari kona Einars, (22. október 1850), var Dýrfinna Guðnadóttir húsfreyja í Dölum, f. 2. september 1823, d. 31. maí 1866.
Börn þeirra hér:
1. Margrét Einarsdóttir, f. 29. desember 1850, d. 15. janúar 1851 „af innvortis sjúkleika“.
2. Brynjólfur Einarsson sjómaður, f. 16. maí 1852, fórst með Gauki 13. mars 1874.


Heimildir