„Halldóra Guðmundsdóttir (Gerði)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Halldóra Guðmundsdóttir''' vinnukona fæddist í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1793 og lést 16. maí 1863.<br> Foreldrar hennar voru Guðmundur Árnason bóndi í Berjanesi 1801, f...) |
m (Verndaði „Halldóra Guðmundsdóttir (Gerði)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 10:57
Halldóra Guðmundsdóttir vinnukona fæddist í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1793 og lést 16. maí 1863.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Árnason bóndi í Berjanesi 1801, f. 1767, sonur Árna „eldri‟ Ísleikssonar klausturhaldara og lögréttumanns í Mörtungu á Síðu Ólafssonar, og kona Guðmundar Árnasonar, Kristín Jónsdóttir húsfreyja, ættuð úr Holtum, f. 1763, d. fyrir manntal 1816.
Halldóra var með foreldrum sínum í Berjanesi 1801, með ekklinum föður sínum þar 1816.
Hún var vinnukona í Steinum þar 1835 með barn sitt Vilborgu Guðmundsdóttur hjá sér.
Við manntal 1845 var hún vinnukona á Teigi í Fljótshlíð, í Bollakoti þar 1850.
Halldóra fluttist að Gerði 1858 frá Teigi og var vinnukona á Gjábakka 1860.
I. Barnsfaðir Halldóru var Guðmundur Hávarðsson í Steinmóðshúsi, f. 1810, d. 28. maí 1860.
Barn þeirra:
Vilborg Guðmundsdóttir vinnukona, f. 8. september 1834, d. 26. júní 1887.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.