„Margrét Arnbjörnsdóttir (Nýjahúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Margrét Arnbjörnsdóttir (Nýjahúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. mars 2014 kl. 15:07

Margrét Arnbjörnsdóttir húsfreyja í Nýjahúsi fæddist 17. júní 1825 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og lést 19. október 1911.
Faðir hennar var Arnbjörn bóndi í Miðbæli undir Eyjafjöllum 1801, f. 1764, d. 5. mars 1841, Jónsson. Móðir Arnbjörns var Margrét, f. 1720, á lífi 1801 í Skarðshlíð, 81 árs, Eyjólfsdóttir bónda í Selkoti, f. 1689 Teitssonar og konu Eyjólfs, Guðríðar Arnbjörnsdóttur, f. 1692.

Margrét var niðursetningur á Syðri-Kvíhólma, Holtssókn, Rang. 1835, vinnukona í Steinum u. Eyjafjöllum 1840, vinnukona í Eyvindarholti, Stóradalssókn, Rang. 1845, vinnukona í Berjaneshjáleigu í Breiðabólstaðarsókn í Rang. 1850.
Hún fluttist til Eyja 1859. Við manntal 1860 var hún vinnukona í Stakkagerði, vinnukona á Gjábakka 1870.
Við manntal 1890 var hún ógift húsmóðir í Nýjahúsi með dótturson sinn Jóhann Maríus hjá sér. Svo var einnig 1901. 1910 var hún enn í Nýjahúsi, ógift húsfreyja.
Margrét giftist ekki, en eignaðist eitt barn með Guðmundi Péturssyni sjómanni frá Elínarhúsi, f. 1836.
Barnið var:
Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Framnesi, f. 31. ágúst 1858, gift Jóni Ísakssyni frá Norðurgarði, f. 11. mars 1859, hrapaði til bana úr Ystakletti 20. ágúst 1890.


Heimildir