„Björgvin Guðmundsson (Viðey)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Björgvin Guðmundsson á Björgvin Guðmundsson (Viðey)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 29. desember 2019 kl. 13:59
Björgvin Guðmundsson fæddist 15. maí 1915 og lést 9. mars 1999. Hann bjó í húsinu Viðey við Vestmannabraut 30. Seinni ár ævi sinnar bjó hann í Reykjavík en var jarðsettur í Vestmannaeyjum.
Björgvin var formaður á Ársæli VE 1948-1967, hann átti hlut í bátnum.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Björgvin:
- Ársæl báru afla klár
- ýtir gniðar meyja,
- býsna hár og brima knár
- Bjöggi Viðar-eyjar.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Björgvin þétt fiski fargar
- fírinn Guðmunds órýri,
- baðar Ársæl í æði
- öldunnar hríðar köldu.
- Sterklegur áfram arkar
- aldrei með mála skvaldur,
- geðugur grérinn téði
- gætir að formanns sæti.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.