„Út í Elliðaey“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 34: | Lína 34: | ||
:''Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey. | :''Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey. | ||
::Lag og texti: [[Valur Óskarsson]] | |||
[[Flokkur:Þjóðhátíðarlög]] |
Útgáfa síðunnar 26. júlí 2005 kl. 13:13
Þjóðhátíðarlag | ||
1979 | 1980 | 1981 |
- Út í Elliðaey situr lítill lundi
- leggur kollhúfur og horfir á,
- þegar bátar sigla hægt á hafið
- höfninni í Vestmannaeyjum frá.
- En niðri á bryggju nokkrir strákar standa
- þeir stara hugfangnir á karlana,
- sem landa fiski, bölva hátt og hrópa,
- en horfa stundum blítt á peyjana.
- Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
- Þeir minnast þeirra daga, er drengir sjálfir voru
- og dreymir oft á nóttunni um það,
- þegar lundapysjur lentu í bænum
- og leiðangur af krökkum hélt af stað,
- því bjarga þurfti í hvelli öllum ungum
- og allir kepptust við að finna mest.
- Já, æskuárin mættu endast lengur,
- því æskan er í lífi voru best.
- Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
- Út í Elliðaey situr lítill lundi,
- lúinn eftir heitan sumardag.
- Allt í kring eru sællegir svartfuglar
- að syngja eigið þjóðhátíðarlag.
- það syngur þarna hver með sínu nefi
- og sumir stíga villtan diskódans.
- því allir eyjafuglar vilja tolla í tísku
- og tæpast færu að dansa Óla skans.
- Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
- Lag og texti: Valur Óskarsson