„Guðni Grímsson (Haukabergi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 3: | Lína 3: | ||
---- | ---- | ||
[[Mynd:KG-mannamyndir 3615.jpg|thumb|250px|Guðni]] | |||
[[Mynd:KG-mannamyndir 9296.jpg|thumb|250px|]] | |||
'''Guðni Grímsson''' frá [[Haukaberg]]i er fæddur 13. nóvember 1934. Foreldrar hans voru [[Grímur Gíslason]] og [[Guðbjörg Magnúsdóttir]]. | '''Guðni Grímsson''' frá [[Haukaberg]]i er fæddur 13. nóvember 1934. Foreldrar hans voru [[Grímur Gíslason]] og [[Guðbjörg Magnúsdóttir]]. | ||
Útgáfa síðunnar 18. júní 2012 kl. 13:04
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðni Grímsson“
![](/images/thumb/8/8b/KG-mannamyndir_3615.jpg/250px-KG-mannamyndir_3615.jpg)
![](/images/thumb/0/02/KG-mannamyndir_9296.jpg/250px-KG-mannamyndir_9296.jpg)
Guðni Grímsson frá Haukabergi er fæddur 13. nóvember 1934. Foreldrar hans voru Grímur Gíslason og Guðbjörg Magnúsdóttir.
Guðni kvæntist Esther Valdimarsdóttur á jóladag 1956. Börn þeirra eru Valdimar f. 1957, Grímur f.1960, Guðni Ingvar f.1963 og Bergur f.1964.
Fjölskyldan bjó í húsinu Einbúa við Bakkastíg fyrir gos en húsið fór undir hraun. Guðni og Esther búa nú á Áshamri.
Nám og störf
Guðni gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja og að honum loknum fór hann í Kvöldskóla iðnaðarmanna og tók minna mótorvélstjórapróf 1954 og 1. stig Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum 1960.
Fyrst fór hann til sjós á mb. Sjöfn VE-37 á síldveiðar fyrir Norðurlandi. Formaður var Þorsteinn Gíslason frá Görðum. Guðni var vélstjóri hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja á mb. Tý VE-315 eftir að hann tók vélstjóraprófið til 1957. Þá var hann hjá Helga Benediktssyni í eitt ár á mb. Fjalari og stýrimaður á Farsæli í eitt ár. Hann var skipstjóri eina vertíð eftir skipstjórnarprófið. Frá 1960 var hann vélstjóri hjá Rafveitu Vestmannaeyja (síðar Bæjarveitum Vestmannaeyja).
Guðni hefur starfað í Kiwanis-hreyfingunni frá árinu 1971. Var hann forseti Kiwanisklúbbsins Helgafells 1982-83 og svæðisstjóri Suðurlands 1988-89.
Heimildir
- Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Vélstjóra- og vélfræðingatal II. Reykjavík: Þjóðsaga ehf, 1996.