„Blik 1939, 5. tbl./Blik“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Loftur Guðmundsson|Loftur Guðmundsson]], kennari: | ::::::[[Loftur Guðmundsson|Loftur Guðmundsson]], kennari: | ||
:::::::::'''Blik.''' | :::::::::'''Blik.''' |
Útgáfa síðunnar 7. október 2009 kl. 10:12
- Loftur Guðmundsson, kennari:
- Blik.
- Æska og blik . . . Þessi björtu orð
- slá bjarma inn í hvers manns sál.
- Þau hljóma eins og vorsvana vængjatök.
- Þau verma eins og tendrað bál.
- Æskan, — með blikandi bros í augum,
- bjart, eins og sólroðað stál.
- Æska með draumblik í sál og sinni
- og seiðandi, djarfar þrár.
- Æska með leifturblik ótamdrar orku
- og órættar framtíðarspár.
- Þér ögrar til víðfeðmra vængjataka
- vorhiminn draumablár.
- Æska, sem horfir með haukfránum augum
- að hafsbrúnar yztu rönd,
- og sérð, hvar í heillandi hyllingafirð
- rís heiðljóma vafin strönd.
- Við blik frá nýkveiktum bálum dagsins
- þar birtast þín óskalönd.
- Æska, það hlutverk er heilagt og stórt,
- sem vor heimur þér leggur í skaut.
- Að skapa úr arfi frá feigri fortíð
- framtíð, á vorgeislabraut.
- Að lyfta þar fána frelsis og dyggða,
- sem föllnu hetjurnar þraut.