„Blik 1939, 4. tbl./Kveðja“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: ::::::::'''Kveðja.''' ::::::Sólskin um sund og voga.
Sumar um land og haf.
Draumlyndur þeyrinn þýtur,
þenur hið hvíta traf.
Lygnar öldur bátinn bera
burt f...) |
m (Verndaði „Blik 1939, 4.tbl/Kveðja“ [edit=sysop:move=sysop]) |
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 6. október 2009 kl. 13:37
- Kveðja.
- Sólskin um sund og voga.
Sumar um land og haf.
Draumlyndur þeyrinn þýtur,
þenur hið hvíta traf.
Lygnar öldur bátinn bera
burt frá strönd. - Í fjarska djúpið dylur
mín draumalönd.
Blás þú sólhýri sunnanvindur
í seglin þönd.
- Sólskin um sund og voga.

- Ég átti viðkvæmar vonir,
sem vermdust í hjartans glóð.
Til himins stigu í hljóðri bæn
mín helgu draumaljóð.
Og loks er kominn sá langþráði dagur,
er legg ég á höf með bros á vörum - —og stefni í fjarskann — einn í förum.
- Ég átti viðkvæmar vonir,