„Guðmundur Karlsson (Reykholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
---- | ---- | ||
'''Heimildir''' | '''Heimildir''' | ||
*''Eyjar gegnum aldirnar'' Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930 | *''Eyjar gegnum aldirnar'' Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930 | ||
[[Flokkur:Þingmenn]] | [[Flokkur:Þingmenn]] |
Útgáfa síðunnar 30. júní 2005 kl. 15:35
Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri, var alþingismaður úr Vestmannaeyjum. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Guðmundur fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Foreldrar hans eru Karl Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður og Unnur Jónsdóttir. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni h. f. og síðar framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna h. f. í Vestmannaeyjum árið 1967-1992. Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöðar hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975. Þá var Guðmundur formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum 1965— 1966 og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum 1970—1974.
Heimildir
- Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930