„Blik 1980/Hafsteinn Stefánsson (kvæði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Blik 1980/Hafsteinn Stefánsson (kvæði)“ [edit=sysop:move=sysop])
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Blik 1980|Efnisyfirlit]]
==Lausavísur==
[[Hafsteinn Stefánsson]], skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:
[[Hafsteinn Stefánsson]], skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:



Útgáfa síðunnar 15. desember 2009 kl. 11:59

Efnisyfirlit


Lausavísur

Hafsteinn Stefánsson, skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:

Beggja skauta sigling ævin er,
í áttina til grafarinnar þokast.
Djúpa ristu í hafið skútan sker,
en skurðurinn í kjölfarinu lokast.

Hafsteinn sat þingmálafund. Þá kvað hann:

Sýnist mér það sannleiksdropi tær
að sjáist ekki gróm á hegðun vorri,
ef menn bara hafa tungur tvær
og tala eftir þörfum sitt með hvorri.