„Fiska- og náttúrugripasafnið“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
== Fuglasafn == | == Fuglasafn == | ||
Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum. | Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum. Hluti þess er fenginn frá [[Náttúrugripasafn Eyjabúa|Náttúrugripasafni Eyjabúa]], sem var deild í [[Byggðasafn Vestmannaeyja|Byggðasafninu]]. | ||
== Fiskasafn == | == Fiskasafn == |
Útgáfa síðunnar 9. janúar 2012 kl. 21:35
Safnið var stofnað árið 1964 og var Friðrik Jesson fenginn til þess að sjá um það. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik hefur séð um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu.
Núverandi forstöðumaður safnsins er Kristján Egilsson og er safnið opið alla daga frá klukkan 11-17 á sumrin en frá klukkan 15-17 á sunnudögum á veturna.
Fuglasafn
Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum. Hluti þess er fenginn frá Náttúrugripasafni Eyjabúa, sem var deild í Byggðasafninu.
Fiskasafn
Í þessum sal eru 12 ker sem geyma allar helstu tegundir nytjafiska sem veiðast hér við land, auk krabba, krossfiska, sæfífla og skeldýra. Í kerjunum er 6°C heitur sjór, sem dælt er úr borholu skammt frá safninu og er sá sjór því tandurhreinn.
Steinasafn
Þar er hægt að finna alls konar tegundir skrautsteina sem fundist hafa hér á landi. Flestir þessir steinar eru gjöf hjónanna Unnar Pálsdóttur og Sveins Guðmundssonar, Arnarstapa í Vestmannaeyjum, til Vestmannaeyjabæjar og var Náttúrugripasafninu falin varsla þeirra.
Tenglar
Heimildir
- Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja [Bæklingur]. Vestmannaeyjar.