|
|
The content of the new revision is missing or corrupted. |
Lína 1: |
Lína 1: |
| '''Ásmundur Friðriksson''' fæddist 31. ágúst 1909 og lést 17. nóvember 1963. Ásmundur var sonur [[Friðrik Svipmundsson|Friðriks Svipmundssonar]] og [[Elín Þorsteinsdóttir|Elínar Þorsteinsdóttur]]. Þau bjuggu nær allan sinn búskap að [[Lönd]]um í Vestmannaeyjum. Árið 1934 kvæntist Ásmundur fyrri konu sinni Elísu Pálsdóttur og eignuðust þau tvö börn, [[Friðrik Ásmundsson|Friðrik]] og [[Elínu Hólmfríður Ásmundsdóttir|Elínu Hólmfríði]]. Hún lést árið 1945. Síðari kona Ásmundar var [[Þórhalla Friðriksdóttir]] og eignuðust þau tvö börn.
| |
|
| |
|
| Ásmundur fór að loknu barnaskólanámi í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist með góðri einkunn. Eftir það fór hann á sjóinn og var meðal annars á skipstjóri á [[Friðþjófur|Friðþjófi]], [[Elliðaey (bátur)|Elliðaey]], [[Sjöstjarnan|Sjöstjörnunni]] og [[Keflvíkingur|Keflvíking]].
| |
|
| |
| Eftir að hann kom í land þá gerðist hann forstjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur og stofnaði síðar eigið fyrirtæki, Söltun hf. Ásmundur lést á heimili sínu í Keflavík, aðeins 54 ára gamall.
| |
|
| |
| [[Loftur Guðmundsson]] samdi formannsvísu um Ásmund:
| |
| : ''Ásmundur frá öllum ber''
| |
| : ''orðstír gætni og dáða''
| |
| : ''á Sjöstjörnunni um votan ver''
| |
| : ''völd hans gæfu ráða.''
| |
|
| |
| [[Óskar Kárason]] samdi einnig formannavísu um Ásmund:
| |
| :''Bylgjur þegar brýtur fley
| |
| :''brims í sköflum þöndum,
| |
| :''heppinn siglir Elliðaey
| |
| :''Ásmundur á Löndum.
| |
|
| |
|
| |
| {{Heimildir|
| |
| * Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950.
| |
| * G.S.'' Sjómannadagsblað Vestmannaeyja''. 1964.}}
| |
|
| |
| [[Flokkur:Formenn]]
| |
| [[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
| |
| [[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
| |
| [[Flokkur:Íbúar við Höfðaveg]]
| |