„Beinafundurinn 1978“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Þann 27. apríl 1978 fundust tvær beinagrindur, á um 3 metra dýpi, þegar verið var að grafa skurð fyrir nýju holræsi sem átti að fara í gegnum [[Þrælaeiði|eiðið]]. Engin ummerki um kistuleifar voru sjáanlegar á staðnum. Seinna var komist að því, samkvæmt athugunum Jóns Steffensens að um væri að ræða tvo karla; | Þann 27. apríl 1978 fundust tvær beinagrindur, á um 3 metra dýpi, þegar verið var að grafa skurð fyrir nýju holræsi sem átti að fara í gegnum [[Þrælaeiði|eiðið]]. Engin ummerki um kistuleifar voru sjáanlegar á staðnum. Seinna var komist að því, samkvæmt athugunum Jóns Steffensens að um væri að ræða tvo karla; ungan karlmann annars vegar og 15-18 ára pilt hins vegar. | ||
Oft áður hafa fundist mannabein á þessum slóðum og hefur komið upp sú kenning að þetta svæði sem kallað hefði verið [[Klemenzeyri]] fyrr á tíð og eflaust þar áður [[Hörgeyri]]. Möguleiki væri á að þarna var að ræða kirkjugarð [[Klemenzkirkja|Klemenzkirkju]], sem var á öldum áður í Vestmannaeyjum. Sagt er að Hjalti Skeggjason og Gissur Ísleifsson hafi reist kirkju á Hörgeyrinni. | Oft áður hafa fundist mannabein á þessum slóðum og hefur komið upp sú kenning að þetta svæði sem kallað hefði verið [[Klemenzeyri]] fyrr á tíð og eflaust þar áður [[Hörgeyri]]. Möguleiki væri á að þarna var að ræða kirkjugarð [[Klemenzkirkja|Klemenzkirkju]], sem var á öldum áður í Vestmannaeyjum. Sagt er að Hjalti Skeggjason og Gissur Ísleifsson hafi reist kirkju á Hörgeyrinni. |
Útgáfa síðunnar 10. júní 2005 kl. 10:49
Þann 27. apríl 1978 fundust tvær beinagrindur, á um 3 metra dýpi, þegar verið var að grafa skurð fyrir nýju holræsi sem átti að fara í gegnum eiðið. Engin ummerki um kistuleifar voru sjáanlegar á staðnum. Seinna var komist að því, samkvæmt athugunum Jóns Steffensens að um væri að ræða tvo karla; ungan karlmann annars vegar og 15-18 ára pilt hins vegar.
Oft áður hafa fundist mannabein á þessum slóðum og hefur komið upp sú kenning að þetta svæði sem kallað hefði verið Klemenzeyri fyrr á tíð og eflaust þar áður Hörgeyri. Möguleiki væri á að þarna var að ræða kirkjugarð Klemenzkirkju, sem var á öldum áður í Vestmannaeyjum. Sagt er að Hjalti Skeggjason og Gissur Ísleifsson hafi reist kirkju á Hörgeyrinni.
Önnur tilgáta kom Friðrik Jesson, þáverandi safnvörður Náttúrugripasafnsins, með um að þarna væru líkamsleifar þeirra sem féllu í átökum Englendinga og Þjóðverja í Eyjum. Þeir börðust hér all grimmilega um kaup á skreið og aðstöðu til verslunar og fiskveiða hér á landi á síðari hluta miðaldar.
Beinin voru send í aldursgreiningu í Tækniháskóla Noregs í Þrándheimi árið 1986. Notast var við geislakolandursgreiningu (¹⁴C) og komist var að líklegt væri að beinin séu frá 15. öld.
Heimildir
- Margrét Hermanns-Auðardóttir. 1992. Hagsmunaátök í Eyjum á ofanverðum miðöldum. Eyjaskinna - 5. rit (bls. 44-60). - Vestmannaeyjar: Prentsmiðjan Eyrún.