„Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir. '''Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir''' frá Akureyri, kennari fæddist þar 3. september 1956.<br> Foreldrar hennar Jóhann Guðmundsson málarameistari, garðyrkjubóndi á Brúnalaug í Öngulsstaðahreppi, Ey., f. 14. janúar 1926 á Eiði á Langanesi, d. 13. janúar 2002, og kona hans Ólöf Sigtryggsdóttir húsfreyja, f. 6. febrúar 1932 á Akureyri, d. 2. október 1990. Þo...) |
m (Verndaði „Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 4. mars 2024 kl. 11:51
Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir frá Akureyri, kennari fæddist þar 3. september 1956.
Foreldrar hennar Jóhann Guðmundsson málarameistari, garðyrkjubóndi á Brúnalaug í Öngulsstaðahreppi, Ey., f. 14. janúar 1926 á Eiði á Langanesi, d. 13. janúar 2002, og kona hans Ólöf Sigtryggsdóttir húsfreyja, f. 6. febrúar 1932 á Akureyri, d. 2. október 1990.
Þorgerður Ásdís lauk landsprófi í Héraðsskólanum á Laugarvatni 1971, varð stúdent í MA 1975, lauk kennaraprófi 1980, B.A.-prófi í ensku og almennum bókmenntum í HÍ 1981, stundaði cand. mag.-nám í ensku í HÍ frá 1986. Hún sótti kennaranámskeið í ensku í Hastings 1981.
Þorgerður Ásdís vann við forfallakennslu á námsárum sínum, var kennari í Gagnfræðaskólanum í Eyjum (hjálparkennsla) 1981-1983, var kennari í Framhaldsskólanum í Eyjum og Námsflokkum Vestmannaeyja 1981-1984, í Fjölbrautarskólanum á Akranesi 1984-1985, Stýrimannaskólanum í Rvk frá 1985, síðar kennari í Norður-Noregi.
Hún sat í stjórn C.I.S.V. frá 1986.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.