„Smáeyjar“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Smáeyjar kort.PNG|thumb|Gamalt kort af Smáeyjum]] | |||
'''Smáeyjar''' eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af [[Stafsnes|Stafsnesi]] og er [[Hani]] stærst. | '''Smáeyjar''' eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af [[Stafsnes|Stafsnesi]] og er [[Hani]] stærst. | ||
Útgáfa síðunnar 9. júní 2005 kl. 08:33
Mynd:Smáeyjar kort.PNG Smáeyjar eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af Stafsnesi og er Hani stærst.
Hæna liggur syðst af þeim og er hún 57 m há. Þar urðu miklar gróðurskemmdir 1990 þegar brimaði yfir eyjuna í stormi. Flestir lundar í eyjunni urðu þar með heimilislausir og var allri veiði hætt í kjölfarið.
Norður af Hænu liggur Hani. Á Hana er áberandi hóll er nefnist Hanahöfuð og ber hæst um 87 m. Graslendi þekur eyjuna að mestu.
Næst í röðinni er Hrauney. Ofan á eyjunni eru áberandi grýttir hamarar sem stingast úr graslendinu. Bæði í Hrauney og í Hana eru veiðikofar og dálítil lundatekja auk þess sem fé er haft á beit.
Grasleysa liggur vestan Hrauneyjar, hún er álíka há og Hæna. Á eyjunni sést ekki stingandi strá eins og nafnið gefur til kynna.