„Sigríður Árnadóttir (Nýjabæ)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Sigríður Árnadóttir''' frá Kerlingardal í Mýrdal, vinnukona, bústýra fæddist þar 13. maí 1813 og lést 8. janúar 1852 í Svartanúpi í Skaftártungu, V.-Skaft.<br> Foreldrar hennar voru Árni Klemensson bóndi í Kerlingardal, f. þar 1764, d. 11. mars 1836, og kona hans Helga Þorsteinsdóttir frá Bólhraunum í Álftaveri, V.-Skaft., húsfreyja, f. þar 1779, d. 5. október 1858. Sigríður var með foreldrum sínum, fermd hjá þeim í Kerlingardal 1828...) |
m (Verndaði „Sigríður Árnadóttir (Nýjabæ)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 31. október 2023 kl. 10:54
Sigríður Árnadóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, vinnukona, bústýra fæddist þar 13. maí 1813 og lést 8. janúar 1852 í Svartanúpi í Skaftártungu, V.-Skaft.
Foreldrar hennar voru Árni Klemensson bóndi í Kerlingardal, f. þar 1764, d. 11. mars 1836, og kona hans Helga Þorsteinsdóttir frá Bólhraunum í Álftaveri, V.-Skaft., húsfreyja, f. þar 1779, d. 5. október 1858.
Sigríður var með foreldrum sínum, fermd hjá þeim í Kerlingardal 1828, var þar 1835 og 1840.
Hún var vinnukona í Nýjabæ í Eyjum 1845, á Gjábakka þar 1850.
Sigríður fór frá Eyjum 1851, var bústýra í Svartanúpi 1851 til æviloka 1852.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.