„Pálína Guðjónsdóttir (Merkisteini)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Pálína Guðjónsdóttir. '''Pálína Guðjónsdóttir''' frá Fornusöndum u. Eyjafjöllum, saumakona fæddist þar 29. október 1914 og lést 28. janúar 2012 í Berjanesi í V.-Landeyjum.<br> Foreldrar hennar voru Guðjón Einarsson bóndi, f. 29. júlí 1886, d. 30. ágúst 1968 og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1886, d. 17. apríl 1974. Pálína var með foreldrum sínum, flutti með þeim að B...)
 
m (Verndaði „Pálína Guðjónsdóttir (Merkisteini)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 28. febrúar 2023 kl. 14:50

Pálína Guðjónsdóttir.

Pálína Guðjónsdóttir frá Fornusöndum u. Eyjafjöllum, saumakona fæddist þar 29. október 1914 og lést 28. janúar 2012 í Berjanesi í V.-Landeyjum.
Foreldrar hennar voru Guðjón Einarsson bóndi, f. 29. júlí 1886, d. 30. ágúst 1968 og kona hans Guðríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1886, d. 17. apríl 1974.

Pálína var með foreldrum sínum, flutti með þeim að Berjanesi 1931.
Hún fór til Eyja um tvítugt, var í vist og lærði kjólasaum hjá Kristínu í Merkisteini. Pálína fluttist til Reykjavíkur og tók að sér kjólasaum. Þá varð hún ráðskona á ýmsum vinnustöðum og lengst var hún 19 vertíðir í Hraðfrystistöð Keflavíkur. Hún dvaldi og vann í Berjanesi á sumrum.
Hún eignaðist barn með Ingva Kristni 1942.
Pálína lést 2012.

I. Barnsfaðir Pálínu var Ingvi Kristinn Jónsson bóndi, vörubílstjóri í Borgarholti í Ásahreppi, f. 5. maí 1905, d. 12. nóvember 1989.
Barn þeirra:
1. Erna Árfells, í Berjanesi í V.-Landeyjum, f. 11. febrúar 1942. Barnsfaðir hennar Jón Þórir Guðmundsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.