„Geirþrúður Johannesen“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Geirþrúður Johannesen (Jona Alvilda ''Gertrud'' Johannesen)''' húsfreyja, fiskverkakona fæddist 21. febrúar 1940 í Færeyjum.<br> Foreldrar hennar voru Eliesar og Edit Johannesen. Geirþrúður flutti til Eyja 1959, vann við fiskiðnað og á saumastofu.<br> Þau Ragnar giftu sig 1959, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Svalbarði við skírn Allans 1960, í verkstæðishúsi Ársæls Sveinssonar við Strandveg, síðan í Grænuhlíð 14 og...) |
m (Verndaði „Geirþrúður Johannesen“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. ágúst 2022 kl. 10:19
Geirþrúður Johannesen (Jona Alvilda Gertrud Johannesen) húsfreyja, fiskverkakona fæddist 21. febrúar 1940 í Færeyjum.
Foreldrar hennar voru Eliesar og Edit Johannesen.
Geirþrúður flutti til Eyja 1959, vann við fiskiðnað og á saumastofu.
Þau Ragnar giftu sig 1959, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Svalbarði við skírn Allans 1960, í verkstæðishúsi Ársæls Sveinssonar við Strandveg, síðan í Grænuhlíð 14 og þar við Gos 1973. Þau bjuggu síðan við Reynigrund í Kópavogi, en búa nú í Sunnusmára þar.
I. Maður Geirþrúðar, (25. júní 1959), er Ragnar Runólfsson frá Bræðratungu, sjómaður, smiður, f. 13. desember 1933.
Börn þeirra:
1. Allan Ragnarsson raffræðingur, f. 27. janúar 1960. Sambúðarkona hans Harpa Þorsteinsdóttir.
2. Ómar Ragnarsson tollvörður, f. 26. júlí 1964. Barnsmóðir hans Dagbjört Ólafsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
- Geirþrúður og Ragnar.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.