„Aðalsteinn Gunnlaugsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Aðalsteinn J. Gunnlaugsson færð á Aðalsteinn Gunnlaugsson)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. júní 2007 kl. 10:50

Aðalsteinn Gunnlaugsson fæddist 14. júlí 1910 og lést 27. febrúar 1991. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson. Bræður Aðalsteins voru Arnoddur og Elías. Aðalsteinn bjó á Vesturvegi 3b og Hólagötu 15.

Aðalsteinn var formaður á mótorbátnum Lagarfoss.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Aðalstein:

Heppinn sækir hafs á reit
hann Gjábakka Alli,
gætinn vel á gýmis sveit,
gjöll þótt Lagga skralli.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Bræðra nú þáttskal þræða,
þrjár má ég vísur pára.
Elztur er Aðalsteinn helztur,
yggurinn Gunnlaugs dyggur.
Veiðir sá garpur greiður,
græðis þó hamist flæður.
Stýrir Atla órýrum
ágætis drengurinn mætur.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.