„Gísli Brynjólfsson (húsasmíðameistari)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Gísli Brynjólfsson trésmiður á Gísli Brynjólfsson (húsasmiður)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. nóvember 2021 kl. 10:08
Gísli Brynjólfsson fæddist 2. október 1903 í Lindartúni í Vestur-Landeyjum og lést 24. október 1977. Gísli fór á vertíð til Vestmannaeyja 1930 og tíu árum síðar er hann alfluttur til Vestmannaeyja þar sem átti heimili til ársins 1973. Hann bjó að Hásteinsvegi 52. Eftir það settist hann að í Keflavík. Gísli var kvæntur Guðrúnu Þorsteinsdóttur sem átti þá sjö börn sem Gísli gekk í föðurstað.
Gísli hóf nám í trésmíði á verkstæði Ársæls Sveinssonar. Hjá Ársæli vann hann alla tíð á meðan hann dvaldi í Vestmannaeyjum. Gísli var félagi í Kirkjukór Landakirkju og mikill áhugamaður um KFUM & K.