„Margrét S. Jónasdóttir (Hnjúki)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Margrét Sigurrós Jónasdóttir''' ráðskona fæddist 13. desember 1876 á Breiðabólstað í Sveinsstaðahreppi, A.-Hún og lést 8. maí 1971.<br> Foreldrar hennar voru Jónas...)
 
m (Verndaði „Margrét S. Jónasdóttir (Hnjúki)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 26. september 2021 kl. 16:56

Margrét Sigurrós Jónasdóttir ráðskona fæddist 13. desember 1876 á Breiðabólstað í Sveinsstaðahreppi, A.-Hún og lést 8. maí 1971.
Foreldrar hennar voru Jónas Jóhannesson bóndi, m.a. í Nýpukoti í Vesturhópi og í í Víðidal, V.-Hún., f. 20. mars 1841 í Helguhvammi, V.-Hún., d. 30. apríl 1915, og kona hans Jónasa Jónasdóttir, húsfreyja, m.a. á Gafli í Víðidal, f. 7. nóvember 1844 í Staðarsókn í V.-Hún., d. 1. ágúst 1908.

Systir hennar var Anna Helga Jónasdóttir húsfreyja á Hnjúki, f. 19. apríl 1882, d. 8. febrúar 1933.

Margrét kom til Eyja 1939 og varð ráðskona hjá Guðmundi mági sínum, en hann bjó þá á Hnjúki ásamt sonum sínum, Sveinbirni og Marinó, og síðar varð hún ráðskona Sveinbjarnar uns hann gifti sig 1952.
Hún lést 1971, var grafin í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.