„Jóhann Antonsson Bjarnasen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 28: Lína 28:
[[Flokkur: Íbúar í Laufási]]
[[Flokkur: Íbúar í Laufási]]
[[Flokkur: Íbúar við Brekastíg]]
[[Flokkur: Íbúar við Brekastíg]]
[[Flokkur: Íbúar á Nýlendu]]
[[Flokkur: Íbúar við Kirkjuveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Austurveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Vestmannabraut]]

Útgáfa síðunnar 2. febrúar 2021 kl. 09:58

Jóhann Antonsson Bjarnasen kaupmaður fæddist 26. júní 1885 í Frydendal og lést 24. september 1953.
Foreldrar hans voru Anton Gísli Emil Pétursson Bjarnasen verslunarstjóri, f. 6. desember 1864, d. 21. mars 1916, og sambýliskona hans Guðrún Jónsdóttir, þá vinnukona í Frydendal, síðar bústýra hans á Vilborgarstöðum, f. 1864, d. 10. nóvember 1890.

Jóhann var námsmaður í Reykjavík 1901, bókhaldari hjá Ólafi Arinbjarnarsyni verslunarstjóra Brydeverslunar í Borgarnesi 1910.
Hann flutti frá Borgarnesi til Eyja 1911.
Þau Hansína giftu sig 1916, bjuggu í Dagsbrún 1918. Jóhann var útgerðarmaður og „skrifari“ í Laufási 1920 með Hansínu og börnunum Antoni Gísla Emil og Jóhönnu Maríu, á Nýlendu 1925 og á Brekastíg 16 1927.
Þau Hansína byggðu húsið við Brekastíg 32 1929-1930 og þar bjuggu þau síðan.

Kona Jóhanns, (1916), var Hansína Gunnarsdóttir Bjarnasen húsfreyja, f. 11. mars 1887, d. 2. nóvember 1973.
Börn þeirra hér:
1. Anton Gísli Emil Jóhannsson Bjarnasen, f. 30. ágúst 1918 í Dagsbrún, d. 23. júlí 1994.
2. Jóhanna María Jóhannsdóttir Bjarnasen, f. 19. nóvember 1919 í Laufási, d. 15. júní 1972.
3. Gunnar Jóhannes Jóhannsson Bjarnasen, f. 10. september 1922 í Laufási, d. 9. nóvember 1987.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.